5,5 milljarða sveifla var hjá HB Granda 28. ágúst 2007 06:00 Mikill viðsnúningur varð til hins betra á rekstri HB Granda á milli ára. Fjármagnsliðir komu við sögu.
HB Grandi var rekinn með ríflega 2,9 milljarða króna hagnaði á fyrri hluta ársins sem er mikill viðsnúningur frá fyrra ári þegar félagið tapaði tæpum 2,6 milljörðum króna. Á öðrum ársfjórðungi skilaði útgerðin 527 milljóna króna hagnaði samanborið við 1.221 milljónar króna tap í fyrra. Sölutekjur námu um 8,2 milljörðum króna og jukust um 6,6 prósent á milli ára. Rekstrartekjur voru um 3,5 milljarðar á öðrum ársfjórðungi sem var tólf prósenta samdráttur. Hann skýrist af minni veiði á úthafskarfa og kolmunna auk sterkara gengis krónunnar. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 1.930 milljónir króna á fyrri árshelmingi, án söluhagnaðar af skipum, eða um 23,6 prósent af rekstartekjum. Í fyrra var EBITDA um 1.647 milljónir og framlegðarhlutfallið um 21,5 prósent. Félagið seldi annars vegar Engey með söluhagnaði en hins vegar féll til tap við sölu Sunnubergs. Skipastóll félagsins er nú tólf skip, þar af fimm frystitogarar. Sem fyrr léku fjármagnsliðir stórt hlutverk í uppgjöri félagsins. Þeir voru jákvæðir um tæpa 1,7 milljarða króna á fyrri hluta ársins en neikvæðir um 4,1 milljarð í fyrra. Þarna var um 5,8 milljarða króna sveifla á milli ára sem skýrist einkum af gengismun og verðbótum. Efnahagur HB Granda hefur styrkst á árinu; eiginfjárhlutfall hefur farið úr 27,4 prósentum í byrjun árs í 37,2 prósent í lok júní. Heildareignir námu um 29 milljörðum króna í lok júní og eigið fé stóð í 10,8 milljörðum.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira