Viðskipti stöðvuð í Kauphöllinni 24. maí 2007 14:51
Viðskipti hafa verið stöðvuð með hlutbréf í OMX-kauphöllinni norrænu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef kauphallarinnar og sagt að frétt sé væntanleg fyrir opnun markaða í fyrramálið. Greint er frá því á sænska viðskiptavefnum Dagens Industri að orðrómur sé um að Kauphöllin í London, LSE, hyggist leggja fram kauptilboð í OMX. Tilboðið hljóði upp á 190 krónur sænskar á hlut, eða um 1.725 íslenskar krónur. Enn fremur kemur fram hjá Dagens Industri að barátta sé í uppsiglingu hjá LSE og Nasdaq-kauphöllinni í Bandaríkjunum um OMX. Kauphöllin í London reyndi fyrir sex árum að kaupa OMX en varð ekki kápan úr því klæðinu. Fréttastofa Reuters bætir því við að orðrómur hafi verið á kreiki um að stjórnir OMX-samstæðunnar og Nasdaq hafi átt í samrunaviðræðum í síðasta mánuði og var Nasdaq sagt hafa lagt fram yfirtökutilboð í OMX upp á23 milljarða sænskra króna, jafnvirði 221 milljarðs íslenskra króna. Talsmaður OMX vísaði orðróminum á bug og sagði stjórnina eiga í viðræðum við nokkrar kauphallir um samstarf á ýmsum sviðum. Gengi hlutabréfa í OMX-samstæðunni hefur hækkað um 43 prósent það sem af er þessu ári. Þar af um 3,2 prósent í dag og stóð það í 180 sænskum krónum á hlut áður en lokað var fyrir viðskipti í kauphöllum samstæðunnar á Norðurlöndunum og í Eystasaltsríkjunum. Talsvert hefur verið um samstarf og samruna kaupahalla víða um heim síðastliðin tvö ár en með þeim er horft til þess að lækka fjármagnskostnað og opna félögum sem skráð eru í einni kauphöll dyr inn á aðra markaði. Er skemmst að minnast þess að kauphöllin í New York í Bandaríkjunum keypti samevrópsku kauphöllina Euronext í fyrra eftir stranga baráttu við þýsku kauphöllina í Frankfurt. Þá keypti OMX-samstæðan keypti rekstur Kauphallar Íslands seint á síðasta ári. Auk þessa gerði Nasdaq ítrekaðar tilraunir til að yfirtaka rekstur bresku kauphallarinnar í Lundúnum (LSE) á síðasta ári. Það gekk ekki eftir en hlutabréfamarkaðurinn festi sér tæpan 30 prósenta hlut í LSE á meðan yfirtökukapphlaupinu stóð. Var haft eftir Robert Greifeld, forstjóra Nasdaq, um miðjan síðasta mánuð að hann muni eftir mætti reyna að koma í veg fyrir að LSE geti stækkað með yfirtöku á öðrum kauphöllum.
Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Sjá meira