Nýtt neyðarkerfi bætir viðbragðstíma 5. maí 2007 00:45 Stjórnstöð Björgunaraðgerðir eru skipulagðar og þeim stýrt úr björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð. Með nýja kerfinu munu starfsmenn geta talað beint við alla sem koma að aðgerðinni og séð hvar viðkomandi er á korti. Fréttablaðið/Pjetur
Nýtt neyðarfjarskiptakerfi var tekið í notkun í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð í gær. Með því geta allir sem koma að almannavörnum haft samskipti í einu fjarskiptakerfi, nánast hvar sem er á landinu. Kerfið byggir á TETRA-fjarskiptakerfinu sem hefur verið notað hér á landi af lögreglu og öðrum björgunaraðilum síðan um aldamótin. Settir hafa verið upp um áttatíu sendar víðs vegar um landið en þeir verða alls 150 þegar kerfið verður fullbúið á næsta ári. Við kynninguna í gær var sett á svið björgun þar sem maður hringdi í Neyðarlínuna og kvaðst vera í vanda staddur á Lyngdalsheiði. Lögreglu- og sjúkrabílar voru sendir á staðinn og mátti sjá nákvæmlega hvar þeir voru á á korti, enda er staðsetningartæki í hverjum síma. Starfsmaður björgunarmiðstöðvarinnar fylgdist með ferðum allra sem tóku þátt í leitinni þar til maðurinn fannst. Verkefnið hófst í lok september á seinasta ári þegar tekin var ákvörðun um að efla innlendan viðbúnað. Síðan þá hefur verið samið við Landsbjörgu um að björgunarsveitir landsins noti kerfið. Orkufyrirtækin, Flugmálastjórn og fleiri opinberir þjónustuaðilar munu einnig geta notað kerfið þegar þörf krefur. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra, sem var við kynningu kerfisins í gær, segir það hafa fyrst og fremst í för með sér stórbætta viðbragðsgetu. Allir sem koma að málinu geti nú unnið saman í einu kerfi um allt landið. „Í björgunarstörfum eru leitar- og fjarskiptakerfi mjög mikilvægur þáttur svo hægt sé að kalla út og stjórna þeim mannskap sem þarf. Með þessu kerfi verður öryggi og öll þjónusta stóraukin.“ Hann segir Ísland eitt fyrsta landið í heiminum sem tekur í notkun eitt neyðarfjarskiptakerfi fyrir allt landið. „Allar þjóðir stefna að því að taka upp svona kerfi en vegna stjórnkerfa og stærðar hefur engum tekist að samhæfa neyðarsamskipti yfir allt landið nema okkur.“ Aðspurður segir Björn kostnaðinn við verkefnið vera nokkur hundruð milljónir króna.
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Sjá meira