Reykjavíkurakademían 10 ára 5. maí 2007 05:00 Reykjavíkur Akademían er samfélag sjálfstætt starfandi fræðimanna stofnað árið 1997. Strax eftir stofnun Akademíunnar var hafist handa við að stilla saman strengi fræðimanna sem unnið höfðu hver í sínu horni og leita að hentugu húsnæði. Í nóvember 1998 fluttu 14 fræðimenn í nýtt fræðasetur í JL-húsinu við Hringbraut. Akademían hefur vaxið og dafnað síðan. Félagar eru um 400 og af þeim hafa nú um 80 vinnuaðstöðu í húsakynnum stofnunarinnar. Þessir fræðimenn vinna að eigin verkefnum og afla styrkja í krafti verðleika sinna og verkefnanna. Einnig taka þeir þátt í samstarfsverkefnum með íslenskum og erlendum fræðimönnum. Frá því að Akademían flutti í JL-húsið hafa um 280 manns haft þar aðstöðu. Flestir eru menntaðir á sviði hug- og félagsvísinda. Í hópnum hafa einnig verið kvikmyndagerðarmenn, blaðamenn og þjóðþekktir rithöfundar. Akademónar eru bæði langskólagengnir einstaklingar og aðrir sem eru að byrja að hasla sér völl á sínu sviði. Þessi sambúð ólíkra fræðasviða og aldurshópa hafa sett mark sitt á Akademíuna.Þverfaglegur vettvangurÍ ljósi framannefndrar fjölbreytni er ReykjavíkurAkademíunni best lýst sem þverfaglegum vettvangi ólíkra fræða. Ólíkt hefðbundnu háskólasamfélagi þar sem hverri deild er markaður bás, hvetur uppbygging Akademíunnar til samstarfs fræðasviða. Samræða ólíkra fræðimanna felur í sér nýsköpun í aðferðum og verkefnum. Nú þegar hafa nokkur þverfagleg alþjóðleg rannsóknarverkefni akademóna náð góðum árangri. Auk þess að sinna rannsóknum tekur Akademían ásamt félögum hennar að sér verkefni fyrir ríki og sveitarfélög, stofnanir og einstaklinga. Akademían stendur einnig reglulega fyrir málþingum og vill stuðla að gagnrýninni samfélags- og menningarumræðu. Akademían á einnig gott samstarf við ýmis fræðasetur og háskólastofnanir. Stefna Akademíunnar og útgáfustarfsemiReykjavíkurAkademían starfar óháð hagsmunaaðilum á sviði stjórnmála og viðskipta og aðhyllist ekki neina pólitíska hugmyndafræði. Til þeirra sem innan vébanda hennar starfa hverju sinni gerir hún kröfur um fræðileg vinnubrögð, fyllstu vandvirkni, nákvæmni og heiðarleika. RA tekur þátt í útgáfu þriggja fræðilegra ritraða. Í samstarfi við Omdúrman er gefin út ritröðin Atvik, handhæg og ögrandi röð smárita um hræringar í menningarlífinu. Íslensk menning er röð veigamikilla fræðirita sem Akademían stendur að ásamt Hinu íslenska bókmenntafélagi. Félagar í Akademíunni standa að útgáfu ritraðarinnar Sýnisbækur íslenskrar alþýðumenningar í samvinnu við Háskólaútgáfuna. Árlega birtast fjölmörg fræðirit eftir akademóna, hér á landi og erlendis. Starfsemi innan AkademíunnarÍ húsakynnum Akademíunnar er að finna bókasafn Dagsbrúnar, sem rekið er í samstarfi við Eflingu - stéttarfélag. Starfandi félög innan RA eru m.a.: Hagþenkir, Kviksaga, heimildamyndamiðstöð, Vefritin Kistan, Hugsandi og Glíman, Miðstöð einsögurannsókna, Leikminjasafn Íslands, Markmál, NN fjölmiðlaþjónusta, Penna sf., Lestrarsetur Rannveigar Lund, Hoffmannsgallerí, Náttúruverndarsamtök Íslands, Jafnréttisstofa, Rannsóknarstofnun um mannlegt atferli, Mirra, miðstöð innflytjendarannsókna og Varp, miðlunardeild RA. Þá hefur Viðskiptaháskólinn á Bifröst einnig aðstöðu í húsinu. Nýverið hlaut rannsóknarhópur innan vébanda RA, Ísland og ímyndir norðursins, öndvegisstyrk Rannís. Á velheppnaðri alþjóðlegri ráðstefnu um efnið sagði annar aðalfyrirlesara ráðstefnunnar, Sherril Grace, prófessor við University of British Columbia og forseti Hugvísindadeildar The Royal Society of Canada: „Í Kanada eru stofnanir af sama tagi (og RA) til innan raunvísinda, læknisfræði og hagfræði - þar eru þær nefndar „hugveitur" - en ekki á sviði hugvísinda. Starfsemi ykkar er einstök og því er þeim mun meiri ástæða til að dást að hugrekki ykkar, frumkvæði og árangri." Ég vil einnig leyfa mér að vitna í ummæli forseta Íslands, Hr. Ólafs Ragnars Grímssonar, er Bókasafn Dagsbrúnar flutti inn í húsakynni Akademíunnar: „ReykjavíkurAkademían hefur reynst brýn viðbót við mennta- og rannsóknarstofnanir okkar Íslendinga, frjór og vakandi vettvangur fræða og menningarstarfs, samfélag sem rúmar allar kynslóðir og öll sjónarmið eins og sannri akademíu sæmir ..." Akademónum er bæði ljúft og skylt að reyna að standa undir þeim væntingum sem ofangreind ummæli gera til þeirra. ReykjavíkurAkademían nýtur stuðnings menntamálaráðuneytisins og er jafnframt með þjónustusamning við Reykjavíkurborg. Stefnt er að útgáfu heimildamyndar og bókar um sögu Akademíunnar á hausti komanda. ReykjavíkurAkademían heldur upp á 10 ára afmæli sitt 7. maí. Í tilefni afmælisins verður opið hús í JL-húsinu að Hringbraut 121, kl. 10-14. Allir eru velkomnir að kynna sér starfsemina innanhúss og spjalla við akademóna. Ég vil nota tækifærið á þessum tímamótum og þakka öllum þeim fjölmörgu velunnurum Akademíunnar sem stutt hafa hana og hvatt á umliðnum árum. Sá velvilji hefur verið okkur drjúgt veganesti. @Megin-Ol umraedugr 8,3p 1.m : Höfundur er trúarbragðafræðingur og formaður ReykjavíkurAkademíunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Skoðun Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Sjá meira
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar