Ljúka yfirtökunni á Versacold 31. júlí 2007 01:45 Í maílok tilkynnti Eimskip um kaup á fjórðungi hlutafjár í Versacold Income Fund og lagði um leið fram yfirtökutilboð í þá hluti sem eftir stóðu. Fréttablaðið/Vilhelm
Öll skilyrði yfirtökutilboðs Eimskips í kanadíska fyrirtækið Versacold Income Fund hafa verið uppfyllt samkvæmt tilkynningu Eimskip Holdings Inc., dótturfélags Hf. Eimskipafélags Íslands og stjórnar Versacold Income Fund til Kauphallar Íslands í gær. Þá hafa öll tilskilin leyfi fyrir yfirtökunni verið veitt. Yfirtökutilboðið í allt félagið sem var lagt fram í maílok hljóðaði upp á 67 milljarða króna. Eimskip verður við yfirtökuna á Versacold langstærsta kæli- og frystigeymslufyrirtæki heims með starfsemi í 35 löndum í fimm heimsálfum. „Eimskip hefur fengið samþykki fyrir kaupum á um það bil 54,1 milljón hlutum, sem samsvara 93 prósentum af útgefnum og útistandandi hlutum eða 87 prósentum af útgefnum og útistandandi hlutum að öllum hlutum meðtöldum,“ að því er fram kemur í tilkynningu félagsins. Eimskip ætlar að eignast allt hlutafé í Versacold Income Fund og áætlar að því ljúki núna um mánaðamótin. „Versacold verður afskráð úr Kauphöllinni í Toronto eins fljótt og hægt er með tilliti til þeirra laga sem gilda þar um. Einnig hyggst Versacold sækja um leyfi til Fjármálaeftirlits Kanada um að losna undan reglum sem gilda um skráð fyrirtæki um leið og Eimskip eignast allt hlutafé í félaginu.“ Eimskip vann með KingSett Capital að fjármögnun kaupanna, sem verður með veði í fasteignum.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira