Exista hf. slær hvergi slöku við 27. júlí 2007 04:00
Exista skilaði 221,4 milljóna evru hagnaði, um 18,4 milljörðum króna, á öðrum ársfjórðungi. Þetta var um fjörutíu prósentum meiri hagnaður en meðaltalsspá Glitnis og Kaupþings hljóðaði upp á. Hagnaður félagsins var borinn uppi af fjárfestingastarfsemi undir undir þann þátt falla eignarhlutir í Bakkavör, Kaupþingi og Sampo Group. Þessi liður skilaði 185,5 milljónum evra en rekstrarstarfsemi, þ.m.t. af vátryggingarekstri og eignaleigustarfsemi, um 36 milljónum evra Á fyrri hluta ársins hagnaðist Exista um 862 milljónir evra sem er um 71,5 milljarðar króna. Þetta er mesti hálfs árs hagnaður íslensks fyrirtækis fyrr og síðar. Arðsemi eigin fjár á síðasta fjórðungi var 32 prósent á ári en sjötíu prósent fyrir fyrstu sex mánuðina. Rekstrartekjur fjórðungsins voru 290 milljónir evra en rúmur helmingur af þeim er hlutur Existu af áætluðum hagnaði Kaupþings og Sampo á síðasta ársfjórðungi. Rekstrarkostnaður og tjónagjöld námu 40 milljónum evra á ársfjórðungnum. Eignir Existu námu 7.709 milljónum evra (640 milljarðar) í lok júní og höfðu aukist um 75 prósent frá ársbyrjun. Skýra kaup félagsins í Sampo miklu um þennan vöxt en Exista á nú tæpan fimmtungshlut í finnska fjármálafyrirtækinu. Eigið fé var komið í 2,8 milljarða evra, um 234 milljarða, og hafði aukist um helming á árinu. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar var 36,7 prósent um mitt árið. Hlutabréf félagsins lækkuðu um 0,63 prósent í gær en uppgjörið var birt eftir lokun markaða.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira