Skoðun

Sjálfstæð utanríkisstefna

Fullt tilefni er til að ræða stefnumál stjórnmálaflokkanna í utanríkis- og alþjóðamálum nú þegar fáeinar vikur eru til kosninga. Tvennt stendur vissulega upp úr í því efni undanfarin ár. Þátttaka Íslands í ólöglegu árásarstríði í Írak og brottför Bandaríkjahers frá Íslandi.

Nú bætist við nýr hernaðarsamningur við Noreg sem vekur óneitanlega hugrenningartengsl við Gamla sáttmála 1262. Í aðdraganda hans var ekki leitað eftir áliti þjóðarinnar frekar en venjulega þegar utanríkismál eiga í hlut.

Það var mikið fagnaðarefni þegar bandaríski herinn hvarf af landi brott sl. haust. Íslendingar eru best settir án hers, hvort sem hann er innlendur eða erlendur. Satt að segja væri tíma og fjármunum stjórnvalda betur varið í mörg önnur verkefni á sviði utanríkismála en „varnarviðræður" við hvert einasta land sem hefur áhuga á því. Raunhæft og brýnt verkefni væri að friðlýsa landið og lögsögu þess fyrir kjarnorku- sýkla- og efnavopnum og banna umferð kjarnorkuknúinna farartækja. Tillaga þess efnis hefur ítrekað verið flutt á Alþingi síðan 1995 en aldrei fengið efnislega meðferð. Þar hefur herseta Bandaríkjanna eflaust tafið fyrir. Bandaríkjastjórn hefur aldrei viljað útiloka að herskip eða flugvélar sem koma í íslenska lögsögu beri kjarnorkuvopn.

Núna er herinn farinn og því engin ástæða til að láta tillitssemi við Bandaríkin koma í veg fyrir aðgerðir. Allir eru í orði kveðnu sammála um þá ógn sem stafar af kjarnorkuvopnum - en æsingurinn virðist oft aukast eftir því sem þau eru fjær okkur sjálfum. Við getum sýnt viðhorf okkar til kjarnorkuvopna í verki með því að friðlýsa eigin rann. Annars væri það hrein sýndarmennska að berjast fyrir afvopnun annars staðar á hnettinum. Samhliða þessu þyrfti auðvitað að beina aukinni athygli að umhverfisöryggi og vernda hafið fyrir úrgangi frá kjarnorkuverum og herstöðvum.

Í aðdraganda Íraksstríðsins kom það fram af hálfu ýmissa stjórnarþingmanna að vera Bandaríkjahers á Íslandi skipti sköpum fyrir stuðning íslenskra stjórnvalda við innrásina í Írak. Þjóðin á rétt á því að stjórnarflokkarnir geri hreint fyrir sínum dyrum og svari því afdráttarlaust hvort vænta megi frekari stuðnings við hernaðaraðgerðir Bush-stjórnarinnar.

Afstaða Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í þessu máli er skýr: Við höfnum áframhaldandi þjónkun við hernaðarhyggju eins og þá sem birtist í stuðningi stjórnarflokkanna við stríðið í Írak. Atkvæði greitt okkur sendir skýr skilaboð um afstöðu til Íraksstríðsins og setu Íslands á lista „hinna staðföstu þjóða".



Við getum sýnt viðhorf okkar til kjarnorkuvopna í verki með því að friðlýsa eigin rann. Annars væri það hrein sýndarmennska að berjast fyrir afvopnun annars staðar á hnettinum.

Höfundur er borgarfulltrúi og skipar 2. sæti á lista Vinstri grænna í Reykjavík norður.




Skoðun

Sjá meira


×