Afkoma Ryanair tekur flugið 7. febrúar 2007 04:00 Ryanair Michael O‘Leary, forstjóri írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair, hefur ástæðu til að gleðjast enda var hagnaður flugfélagsins talsvert yfir væntingum greinenda. MYND/AFP
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar Írska lággjaldafyrirtækið Ryanair skilaði 47,7 milljóna evra hagnaði á þriðja rekstrarfjórðungi félagsins, sem endaði í desember í fyrra. Þetta jafngildir tæpum 4,3 milljörðum íslenskra króna sem er 30 prósenta aukning á milli ára. Búist var við minni hagnaði vegna síaukins eldsneytiskostnaðar í fyrra. Á sama tíma árið 2005 skilaði flugfélagið 36,8 milljónum evrum í hagnað, eða tæpum 3,3 milljörðum íslenskra króna. Tekjur flugfélagsins námu 493 milljónum evra, 44 milljörðum íslenskra króna, á tímabilinu, sem er 33 prósenta hækkun á milli ára. Fréttaveitan Bloomberg segir Ryanair hafa hækkað ýmis gjöld á farþega á síðasta ári og tekist að koma þannig til móts við aukinn rekstrarkostnað vegna hækkunar á eldsneytisverði og fleiri liðum. Bloomberg segir afkomuna á fjórðungnum langt umfram spár greinenda en meðalspá þeirra hljóðaði upp á 21 milljónar evra hagnað, sem svarar til tæplega 1,9 milljarða íslenskra króna. Þá fjölgaði farþegum sem flugu með vélum lággjaldaflugfélagsins talsvert á milli ára. Farþegar voru 10,25 milljónir talsins á síðustu þremur mánuðum nýliðins árs en það er 19 prósenta aukning frá árinu á undan. Michael O’Leary, forstjóri Ryanair, segist búast við enn betri afkomu á þessu ári vegna lækkunar á eldsneytisverði. Gerir hann ráð fyrir að hagnaðurinn muni nema allt að 390 milljónum evra, 34,8 milljörðum íslenskra króna, sem er 40 milljónum evrum meira en fyrri afkomuspá flugfélagsins hljóðaði upp á. Flugfélagið vinnur enn að óvinveittri yfirtöku á írska flugfélaginu Aer Lingus. Lítið hefur hins vegar þokast í málinu. Haft hefur verið eftir O‘Leary að svo geti farið að Ryanair leggi fram nýtt yfirtökutilboð í flugfélagið í maí.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Fleiri fréttir Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira