SpKef til Reykjavíkur 11. júlí 2007 00:45 Guðmundur Steinarsson
Sparisjóðurinn í Keflavík ætlar að opna útibú í Borgartúni í haust. Að sögn Geirmundar Kristinssonar, sparisjóðsstjóra SpKef, er þetta liður í því að efla þjónustu við viðskiptavini sparisjóðsins í höfuðborginni. „Eins og gefur að skilja vegna nálægðar okkar við höfuðborgarsvæðið þá eru margir af okkar viðskiptavinum í Reykjavík. Menn hafa svo í vaxandi mæli leitað eftir viðskiptum við okkur frá Reykjavíkursvæðinu.“ Hann útilokar ekki að SpKef færi sig inn á önnur svæði. Geirmundur bendir á að þrjár blokkir vinni á höfuðborgarsvæðinu: Sparisjóðirnir á landsbyggðinni sem hafa með sér Samband íslenskra sparisjóða, SPRON samstæðan sem rekur sitt eigið markaðsstarf og Byr sem sameinast brátt SPK. „Þannig að út af fyrir sig er enginn einn sparisjóður lengur eftir á höfuðborgarsvæðinu eftir að Kópavogur er farinn út. Við erum út af fyrir sig fyrsti sparisjóðurinn til að vera kominn aftur inn á Reykjavíkursvæðið þegar hinir eru farnir frá okkur.“ Til þess að brúa vöxt sparisjóðsins á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu verður farið út í stofnfjárútboð í september. Uppreiknað verðmæti hins nýja stofnfjár, sem verður selt, er um 2,1 milljarður króna. Þetta er þriðja stofnfjáraukning SpKef á innan við einu ári og mun styrkja eiginfjárgrunninn. „Við erum að stækka okkur og aukum eigið fé á móti vaxandi umsvifum.“ Geirmundur telur að framtíðin sé sú að sparisjóðir eigi eftir að sameinast meira þótt sparisjóðasamrunar séu síður en svo einfaldir vegna mikilvægis þeirra fyrir samfélagið á hverju svæði. Ekkert liggur fyrir um slíkt hjá SpKef í augnablikinu. „Að sameina sparisjóði er miklu erfiðara og flóknara ferli heldur en nokkurn tímann þegar menn eru í sameiningarferli með sína eigin buddu.“
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira