Teygja sig nú um mestallan heim 25. apríl 2007 03:00 Peder Winther framkvæmdastjóri frystivöruflutningasvið Samskipa segir félagið á höttunum eftir samstarfsfyrirtækjum um heim allan með það fyrir augum að efla flutninganet sitt.
Samskip hafa tekið upp samstarf við flutningafyrirtækið Gulf Agency Company (GAC) sem er með höfuðstöðvar í Dubai. Peder Winther, framkvæmdastjóri frystivöruflutningasviðs Samskipa, tilkynnti um samstarfið við opnun sjávarútvegssýningarinnar í Brussel (Europan Seafood Exposition) í gær. Með tilkomu samstarfsins segjast Samskip nú geta boðið stórbætta þjónustu í frystivöru- og flutningsmiðlun í Suðaustur-Asíu, á Indlandi, í Austurlöndum nær og í nokkrum löndum Afríku, þar á meðal Egyptalandi og Suður-Afríku. Peder Winther segir að uppbygging frystivöru- og flutningsmiðlunar Samskipa byggist á reynslu félagsins í flutningum á frystum sjávarafurðum og að með því að tengja saman þjónustunet félagsins og samstarfsfyrirtækja sé nú hægt að bjóða heildstæða flutningsþjónustu frá dyrum sendanda að dyrum móttakanda á heimsvísu, sama um hvaða varning er að ræða. Samkomulagið við GAC kemur í kjölfar tveggja annarra samstarfssamninga Samskipa í Suður-Ameríku, en félagið styrkti einnig nýverið stöðu sína í Norður-Ameríku með kaupum á helmingshlut í Bayside Food Terminal i Kanada. Þá er ekki langt síðan tilkynnt var um samstarf við Interocean Shipping Corporation i Japan. Peder Winther segir Samskip hins vegar langt frá því að leggja árar í bát í þessum efnum og nefnir möguleikann á frekara samstarfi í Suður-Ameríku.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira