Samruni námurisa úr sögunni? 8. nóvember 2007 13:33 Paul Skinner, stjórnarformaður Rio Tinto, á símafundi. MYND/AFP
Námurisinn Rio Tinto hafnaði í dag yfirtökutilboði frá BHP Billiton, stærsta námuvinnslufyrirtæki í heimi. Við samrunann hefði orðið til virði hins nýja félags orðið 45 þúsund milljarða króna virði. Eftir því sem Reuters greinir frá höfðu verið upp hugmyndir um samruna fyrirtækjanna í nokkurn tíma en virði Rio Tinto er talið um 17.500 milljarða króna. Buðu BHP-menn þrjá hluti fyrir hvern einn frá Rio Tinto en það tilboð þótti forsvarsmönnum þess síðarnefnda ekki nógu gott. Vegna frétta af yfirtökutilboðinu hækkuðu bréf í Rio Tinto í í kauphöllinni í Lundúnum um nærri 30 prósent í morgun og hafa þau aldrei verið hærri. Forsvarsmenn BHP segja í tilkynningu að þeir séu ekki af baki dottnir í málinu en verði af samrunanum er um að ræða næststærstu yfirtöku sögunnar. Sú stærsta var yfirtaka símafyrirtækisins Vodafone á fyrirtækinu Mannesmann árið 2000. Samanlagt virði Rio Tinto og BHP yrði 360 milljarðar punda, jafnvirði um 45 þúsund milljarða króna, sem gerði fyrirtækið að svipaðri stærð og Microsoft. Tíðindin koma í kjölfar þess að Rio Tinto gekk í gær frá kaupum á álfyrirtækinu Alcan sem meðal annars rekur álverið í Straumsvík. Kaupverðið þar nam nærri fimm þúsund milljörðum króna. Umhverfisverndarhópar og samtök hafa gagnrýnt Rio Tinto og sakað félagið um að virða ekki umhverfið, öryggismál og réttindi verkamanna í námum.
Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Rúmur milljarður til Viðskiptaráðs og SA á fimm árum Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Fleiri fréttir Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Sjá meira