Meirihlutinn situr við sinn keip 9. maí 2007 04:45
Hópur Eyjamanna, sem á meirihluta hlutafjár í Vinnslustöðinni, birtir í dag opinbert yfirtökutilboð í félagið þar sem boðnar eru 4,6 krónur fyrir hvern hlut. Hópurinn, sem samanstendur af Haraldi og Kristínu Gíslabörnum og Sigurgeiri Brynjari Kristgeirssyni, forstjóra félagsins, hyggst sitja við sinn keip, jafnvel þótt að síðasta viðskiptagengi Vinnslustöðvarinnar hafi verið 8,3 krónur á hlut. Gengið 8,3 er sjötíu prósent yfir tilboðsverði að teknu tilliti til þrjátíu prósenta arðgreiðslu fyrir síðasta ár. Eins og komið hefur fram í Markaðnum eru hluthafar í Vinnslustöðinni ekki á eitt sáttir um verðmæti „síðasta móhíkanans“, eins og síðasta útgerðarfélagið á Aðallista Kauphallar hefur verið kallað. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, sem fer fyrir ríflega þrjátíu prósenta hlutafjár í Vinnslustöðinni, hefur lýst því að yfirtökutilboðið sé of lágt. Landsbankinn keypti mikið magn af bréfum í gær en talið er líklegt að Guðmundur standi á bak við þau viðskipti. Samkvæmt heimildum Markaðarins er talið ólíklegt að samkomulag náist með stærstu hluthöfum Vinnslustöðvarinnar að svo stöddu. Meirihluti hluthafa óskar jafnframt eftir því við stjórn Kauphallarinnar að Vinnslustöðin verði afskráð úr Kauphöll samhliða yfirtökutilboði. Væntanlega verður félagið afskráð úr Kauphöll miðað við óbreytta stöðu. Ætla má að smáir hluthafar selji bréf sín áfram ef núverandi kjör bjóðast og gæti því eignarhaldið í félaginu þrengst enn meira. Greiningardeildir Glitnis og Kaupþings meta markgengið í Vinnslustöðinni til tólf mánaða á 4,7-4,8 krónur en markaðsvirðið er að allra mati hærra ef aflaheimildir yrðu seldar. Vinnslustöðin hagnaðist um 765 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi sem var mikill viðsnúningur þegar félagið tapaði 213 milljónum króna. Hlutabréf í Vinnslustöðinni hafa sýnt mesta hækkun skráðra félaga á árinu, eða um 84 prósenta ávöxtun.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira