Viðskiptaráð í Helsinki 9. maí 2007 04:00 Hinn 20. júní næstkomandi verður formlega sett á stofn finnsk-íslenskt viðskiptaráð þar í borg.
Hinn 20. júní næstkomandi verður formlega sett á stofn finnsk-íslenskt viðskiptaráð í Helsinki. Markmið þess verður að stuðla að enn öflugri viðskiptum ríkjanna. Viðskiptaráðið mun halda utan um skipulagningu viðburða og hlutlausa upplýsingamiðlun um viðskiptaumhverfi Íslands og Finnlands og ný viðskiptatækifæri. Kristjana Aðalgeirsdóttir arkitekt, sem búið hefur í Finnlandi í mörg ár, mun halda utan um starfsemi ráðsins. Viðskiptaráðið er stofnað að frumkvæði sendiráðsins og í samráði við íslenska hagsmunaaðila á finnska markaðnum. „Menn hafa talað um þetta um hríð. Nú er einmitt rétti tíminn,“ segir Hannes Heimisson, sendiherra Íslands í Finnlandi. „Við höfum orðið vör við gríðarlega eftirspurn eftir upplýsingum. Það er mikilvægt að koma á fót sjálfstæðum og óháðum vettvangi á borð við þennan. Staðreyndin er sú að margir vita ekki allt of mikið um Ísland. Þeir þekkja ekki þær breytingar sem hafa orðið á íslensku viðskiptaumhverfi og efnahagsmálum á síðustu tíu til fimmtán árum. Við höfum því allt að vinna og engu að tapa í því að bæta upplýsingagjöfina.“ Meðal íslenskra fyrirtækja sem þegar hafa öfluga starfsemi í Finnlandi má nefna Kaupþing, Glitni og Eimskipafélagið. Þá hafa beinar fjárfestingar íslenskra félaga í finnskum fyrirtækjum einnig aukist verulega. Hæst ber hlutdeild Exista í fjármálafyrirtækinu Sampo sem vakið hefur gríðarmikla athygli í Finnlandi.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira