Vaxtaákvarðanir í Evrópu á morgun 9. maí 2007 05:00 Flestir búast við að stýrivextir verði hækkaðir í Bretlandi á morgun. Nokkurrar óvissu gætir með vaxtaákvörðun á evrusvæðinu.
Vaxtaákvörðunardagar eru hjá bæði Englandsbanka og evrópska seðlabankanum á morgun. Greinendur eru sammála um að Englandsbanki hækki vexti til að koma verðbólgu, sem hefur ekki verið hærri í áratug, niður að tveggja prósenta verðbólgumarkmiðum bankans. Reyndar búast flestir við hækkunum á evrusvæðinu á næstunni en hvort 3,75 prósenta stýrivextir fari upp á morgun eður ei er óvíst. Evrópusambandið sendi frá sér uppfærða hagspá fyrir evrusvæðið á mánudag. Spáð er 2,6 prósenta hagvexti á evrusvæðinu á árinu, sem er 0,2 prósentustiga hækkun. Þar af var hagvaxtarspáin fyrir Þýskaland hækkuð um 0,7 prósentustig í 2,5 prósent. Fram kemur í spánni að aukinn hagvöxtur verði knúinn áfram að auknum fjárfestingum fyrirtækja, sem skilar sér í aukinni eftirspurn. Greiningardeild Kaupþings bendir á að einmitt þetta auki líkurnar á stýrivaxtahækkun á næstunni hvort sem það verði í sumar eða síðar Talsverðar líkur eru á hækkun stýrivaxta í Bretlandi. Stýrivextir þar standa í 5,25 prósentum en í ljósi 3,1 prósents verðbólgu í mars sem var umfram væntingar var þrýst á Englandsbanka að hann hækkaði vextina hratt, jafnvel í stærri stökkum en hann kýs.
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira