Forsætisráðherra: Margir ókostir fylgja aðild að ESB 23. janúar 2007 19:00
Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir marga ókosti fylgja aðild að Evrópusambandinu. EES-samningurinn tryggi nægilegt aðgengi að markaði ESB. Geir segir að aðild hafi ekki verið til umræðu á Ísland í mörg ár. Mögulegt sé þó að einn flokkur ræði þann möguleika fyrir þingkosningarnar í vor. Forsætisráðherra var í viðtali í fréttum á sjónvarpsstöðinni TV2 í Noregi í gær. Þar var hann spurður um afstöðu sína til samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og Evrópusambandsins. Öðru hverju væru fréttir að berast af öflum á Íslandi sem telji ESB-aðild einu réttu leiðina. Forsætisráðherra var því spurður hve langt væri í inngöngu og sagði hann langt í hana. "Það skipulag sem við búum við nú er mjög gott og þeirri spurningu ósvarað hvers vegna við skyldum gang aí ESB?" sagði Geir. "Hvað myndi koma sér vel fyrir okkur við þær aðstæður? Margir ókostir fylgja greinilega aðild en það aðgengi að ESB-markaði sem við búum við í dag, fjórfrelsið og svo framvegis, uppfylla að miklu leyti þær kröfur sem við gerum. Þetta hefur ekki verið þema í pólitískri umræðu á Íslandi í mörg ár. Mögulegt er að einn flokkur taki það upp í þeirri kosningabaráttu sem framundan er en það kemur í ljós." Fréttamaður TV2 sagði þá Norðmenn og Íslendinga e.t.v. búa við þær efnahagsaðstæður að geta setið í útjarði umheimsins og slakað á því á Íslandi væri greinilega uppsveifla í hagkerfinu. Forsætisráðherra svaraði þá að rétt væri að vel gegni á íslandi. Hann kvartaði a.m.k. ekki.
Erlent Fréttir Mest lesið Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Innlent Skotmennirnir feðgar Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Innlent Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Innlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Innlent Fleiri fréttir Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Sjá meira