Verðum hluti af leiðandi kauphöll 26. maí 2007 08:00 Opnað fyrir viðskipti í sameinaðri kauphöll í apríl. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, segir Kauphöll Íslands hafa sameinast OMX á hárréttum tíma. Ef af henni hefði ekki orðið væri hætta á að kauphöllin hefði setið eftir við sameiningu Nasdaq og OMX. MYND/Anton
viðskipti Bandaríski hlutabréfamarkaðurinn Nasdaq gerði í gærmorgun yfirtökutilboð í OMX-samstæðuna, sem rekur kauphallir á Norðurlöndunum, þar á meðal hér, og í Eystrasaltsríkjunum. Stjórnir beggja fyrirtækja hafa samþykkt tilboðið og mæla með því að hluthafar geri það líka. Sameinað fyrirtæki mun heita Nasdaq OMX Group með markaðsvirði að öllu óbreyttu upp á 7,1 milljarð bandaríkjadala, jafnvirði 440,7 milljarða íslenskra króna. Tilboðið hljóðar upp á 3,7 milljarða bandaríkjadala, jafnvirði 227,9 milljarða íslenskra króna. Greitt verður með nýjum hlutum í Nasdaq og reiðufé. Kaupverðið nemur 208,1 sænskri krónu á hlut sem er 19 prósentum yfir lokagengi bréfa í OMX á miðvikudag. Gert er ráð fyrir að samruna fyrirtækjanna ljúki á síðasta fjórðungi þessa árs. Robert Greifeld, forstjóri Nasdaq, verður forstjóri samstæðunnar en Magnus Böcker, núverandi forstjóri OMX AB, verður stjórnarformaður sameinaðs félags. OMX keypti Kauphöll Íslands síðasta haust og tók við rekstrinum í desember. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, segir samruna kauphallanna hafa verið á háréttum tíma. „Þetta er fagnaðarefni. Hefðum við ekki sameinast OMX á sínum tíma er hætta á að við hefðum setið eftir í samrunanum. Tímasetningin var því afar góð. Nú erum við að taka skrefið lengra og verða hluti af leiðandi kauphöll með sterka stöðu beggja vegna Atlantshafsins. Sýnileiki fyrirtækja sem skráð eru hér og aðgangur fjárfesta kemur til með að batna enn frekar," segir hann og bendir á að einungis Kauphöllin í New York í Bandaríkjunum, sem hefur sameinast samevrópska hlutabréfamarkaðnum Euronext, hafi svipaða stöðu. Þórður segir samrunann geta haft jákvæð áhrif á starfsemi kauphallarinnar hér. „Það hefur verið í skoðun hjá OMX-samstæðunni að nýta hagkvæmt skattaumhverfi hér á landi. Það getur leitt til þess að einhverjir starfshættir verði efldir hér á landi fremur en dregið úr þeim á næstu misserum," segir hann.
Mest lesið Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Viðskipti innlent Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Viðskipti innlent Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Viðskipti innlent Yfir þúsund hafa fært flug vegna yfirvofandi verkfalls Viðskipti Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Atvinnulíf Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Viðskipti innlent Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Viðskipti innlent Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Viðskipti innlent Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Fleiri fréttir Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Sjá meira