Viðskipti innlent

Hagræðing fyrir viðskiptavini

„Áhugi viðskiptavina á að stýra sjálfir hvenær dags þeir kjósa að horfa á uppáhalds sjónvarpsefni sitt mun líklega leiða okkur á þá braut að mestalltdagskrárefni framtíðar verða aðgengileg í gegnum Sjónvarp Símans,“ segir Linda.
„Áhugi viðskiptavina á að stýra sjálfir hvenær dags þeir kjósa að horfa á uppáhalds sjónvarpsefni sitt mun líklega leiða okkur á þá braut að mestalltdagskrárefni framtíðar verða aðgengileg í gegnum Sjónvarp Símans,“ segir Linda. MYND/Rósa

Síminn og 365 miðlar hafa gert með sér samning um frekari dreifingu sjónvarpsefnis. Á síðasta ári undirrituðu forsvarsmenn Símans og 365 miðla samning um aðgang 365 miðla að Sjónvarpi Símans. Nýlega gerðu þeir með sér annan samning, sem hefur töluverða hagræðingu í för með sér fyrir viðskiptavini Símans.

„Viðaukinn felur í sér að viðskiptavinirnir geta séð enska boltann og fleira íþróttaefni á Sýn 2, án þess að skipta um afruglara eða breyta móttöku sjónvarpsefnis," útskýrir Linda Björk Waage, forstöðumaður kynningarmála Símans. „Í samkomulaginu felst líka að viðskiptavinir Símans sem hafa aðgang að ADSL+2 dreifileið geta séð Sýn 2 í háskerpu eða HD, um leið og tæknilegar forsendur leyfa."

Að sögn Lindu þýðir þetta að viðskiptavinir Símans geta fengið alla áskrift bæði frá 365 miðlum og Skjánum á myndlykli Símans. Allra hörðustu fótboltaáhugamenn og -konur ættu því að geta séð hetjurnar sínar í ensku deildinni ásamt því að geta fylgst með gangi mála í fjórum öðrum samtímaleikjum.

Þá hefur fótbolti í háskerpu verið töluvert í umræðunni og segir Linda Símann hafa brugðist við því með því að uppfæra sinn búnað. „Stefnt er að því að boltinn verði í boði í háskerpu á haustmánuðum. Þá hafa báðir aðilar undirritað viljayfirlýsingu um að fréttir Stöðvar 2, Ísland í dag og valdir þættir verði aðgengilegir í Sjónvarpi Símans eftir að þeir hafa verið sýndir. Opið efni frá 365 miðlum yrði aðgengilegt öllum, en efni úr læstri dagskrá yrði einungis í boði fyrir áskrifendur efnisins.

Linda er ánægð með samstarfið og telur að það muni eflast í framtíðinni. „Það er allra hagur að dreifing og áskriftarþjónusta verði sem einföldust og aðgengilegust fyrir viðskiptavini Símans. Fólk vill einfaldleika, einn myndlykil sem veitir möguleikann á að kaupa allt það sjónvarpsefni sem það hefur áhuga á."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×