Bank of Scotland afskrifar 2 milljarða punda vegna undirmálslána 3. desember 2007 10:53
Reiknað er með að stjórn Royal Bank of Scotland (RBS) muni í þessari viku gera grein fyrir hversu mikið bankinn þarf að afskrifa vegna undirmálslánakrísunnar á Bandaríkjamarkaði. Talið er að afskriftirnar muni í heild nema um tveimur milljörðum pund eða yfir 250 milljörðum kr. Fjallað er um málið í sunnudagsútgáfu The Telegraph. Þar segir að hluthafar í RBS hafi gert kröfu um að bankastjórnin geri hreint fyrir sínum dyrum. Hvað varðar fyrrgreinda upphæð. tvo milljarða punda, er hún ekki öll tilkomin vegna undirmálslánanna heldur er þar einnig inni tap sem RBS hefur orðið fyrir í tengslum við kaupin á hollensku bankasamstæðunni ABN Amro. Hlutir í RBS hafa fallið um 30% í ár vegna taugatitrings út af undirmálslánunum og ABN Amro en það þýðir að eign hluthafa í bankanum hefur rýrnað um 20 milljarða punda í ár. Telegraph nefnir að á móti tapinu hafi RBS nokkur sterk spil á hendinni. Nefnt er m.a. til sögunnar að RBS hefur hagnast um 3 milljarða pund á eign sinni í Bank of China í ár og er í gangi með að selja járnbrautarfélag sitt Angel Trains. Er reiknað með að sú sala skili bankanum um 4 milljarða punda. RBS er vel kunnur í fjármálalífinu hérlendis en bæði Kaupþingbanki og Landsbankinn hafa átt samstarf með RBS við fjármögnun einstakra verkefna í útrásinni.
Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Viðskipti innlent Flugmenn og Icelandair funda á morgun Viðskipti innlent Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira