Viðskipti erlent

Bank of Scotland afskrifar 2 milljarða punda vegna undirmálslána

Reiknað er með að stjórn Royal Bank of Scotland (RBS) muni í þessari viku gera grein fyrir hversu mikið bankinn þarf að afskrifa vegna undirmálslánakrísunnar á Bandaríkjamarkaði. Talið er að afskriftirnar muni í heild nema um tveimur milljörðum pund eða yfir 250 milljörðum kr.

Fjallað er um málið í sunnudagsútgáfu The Telegraph. Þar segir að hluthafar í RBS hafi gert kröfu um að bankastjórnin geri hreint fyrir sínum dyrum. Hvað varðar fyrrgreinda upphæð. tvo milljarða punda, er hún ekki öll tilkomin vegna undirmálslánanna heldur er þar einnig inni tap sem RBS hefur orðið fyrir í tengslum við kaupin á hollensku bankasamstæðunni ABN Amro.

Hlutir í RBS hafa fallið um 30% í ár vegna taugatitrings út af undirmálslánunum og ABN Amro en það þýðir að eign hluthafa í bankanum hefur rýrnað um 20 milljarða punda í ár.

Telegraph nefnir að á móti tapinu hafi RBS nokkur sterk spil á hendinni. Nefnt er m.a. til sögunnar að RBS hefur hagnast um 3 milljarða pund á eign sinni í Bank of China í ár og er í gangi með að selja járnbrautarfélag sitt Angel Trains. Er reiknað með að sú sala skili bankanum um 4 milljarða punda.

RBS er vel kunnur í fjármálalífinu hérlendis en bæði Kaupþingbanki og Landsbankinn hafa átt samstarf með RBS við fjármögnun einstakra verkefna í útrásinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×