Vilja aldurinn úr sjötugu í 67 ár 4. júlí 2007 03:00
Samtök verslunar og þjónustu fagna því að atvinnutekjur skerði ekki lengur bætur þeirra sem eru 70 ára og eldri. Í fréttabréfi sínu hvetja samtökin jafnframt ríkisstjórnina til að lækka aldurinn niður í 67 ár hið fyrsta. „Í landinu er sífellt stærri hópur eldri borgara sem vill og getur unnið margvísleg störf í mismunandi starfshlutfalli, en fæst ekki út á vinnumarkaðinn vegna þess að með launuðu starfi skerðast aldurstengdar greiðslur hans. Á sama tíma eykst heilbrigði hópsins, lífaldur lengist og sífellt fleiri eru tilbúnir að stunda einhverja launavinnu. Þessi staða er uppi, ekki vegna þess að hinar aldurstengdu bætur séu svo háar að með launavinnu en án bótanna geti viðkomandi ekki framfleytt sér, heldur vegna þess að fólki finnst óréttlátt að þær skerðist, - bætur sem það hefur á langri starfsævi áunnið sér rétt til að fá við tiltekinn aldur,“ segir í fréttabréfi SVÞ. „Þetta snýst því um grundvallarafstöðu. Til viðbótar verður svo að nefna þann félagslega ávinning sem hefst af aukinni atvinnuþátttöku eldri borgara sem annars skortir ef til vill lífsfyllingu og tilgang.“ SVÞ fagna áfanganum en benda á að samkvæmt niðurstöðum rannsóknar Rannsóknarseturs verslunarinnar á atvinnuþátttöku eldri borgara og öryrkja gætu um 29 prósent fólks á aldrinum 65 til 71 árs hugsað sér að vinna launavinnu ef tekjurnar skertu ekki lífeyri eða aðrar bætur þeirra. „Þessi hópur er tæplega 4.000 manns. SVÞ hvetja ríkisstjórnina til að ganga enn lengra en nú hefur verið gert með því að aldurstengdar bætur fólks sem náð hefur 67 ára aldri skerðist ekki þótt viðkomandi séu í launuðu starfi. Sömuleiðis bætur öryrkja sem hefja launaða atvinnu.“
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira