Greiningadeild Kaupþings spáir verðbólgu innan þolmarka 10. júlí 2007 17:19 Greiningadeild Kaupþings spáir lækkun 12 mánaða verðbólgu.
Greiningardeild Kaupþings spáir 0,1% hækkun vísitölu neysluverðs í júlí. Gangi spáin eftir mun tólf mánaða verðbólga mælast 3,6% sem er innan efri þolmarka Seðlabankans (4%). Það hefur ekki gerst frá því í ágúst 2005. Í spá Greiningardeildar er gert ráð fyrir því að fasteignaverð leiði hækkunina en að útsöluáhrif vinni hins vegar á móti hækkandi fasteignaverði. Húsnæðisliðurinn hefur verið leiðandi í hækkun vísitölu neysluverðs á síðustu mánuðum og gerir Greiningardeild ráð fyrir því að svo verði áfram í mælingunni í júlí. Mikil þensla er á íbúðamarkaði og hafa umsvif verið að aukast hægt og bítandi síðustu mánuði. Samkvæmt Fasteignamati ríkisins hækkaði íbúðaverð um 3,6% í maí frá fyrri mánuði og hefur íbúðaverð hækkað um allt að 10% á fyrstu fimm mánuðum ársins. Greiningardeild gerir ráð fyrir frekari hækkun fasteignaverðs í júní. Þá gerir Greiningadeildin ráð fyrir því að eftirspurn á fasteignamarkaði muni minnka eftir að Íbúðalánasjóður (ÍLS) lækkaði í síðustu viku hámarkslánshlutfall úr 90% í 80% og vaxtahækkanir á íbúðalánum bankanna sem og ÍLS. Yfirlýsing um áframhaldandi aðhald hjá Seðlabankanum ætti einnig að hafa áhrif á væntingar neytenda í náinni framtíð, en væntingar neytenda eru í hæstu hæðum um þessar mundir.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira