Kátt í kauphöllinni 10. júlí 2007 01:00 Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,82 prósent í gær og hefur hækkað um tæplega 36 prósent frá áramótum. Ekki er endilega leiðrétting í spilunum að mati sérfræðinga. Gengi KR-inga í Landsbankadeildinni hefur verið á allra vörum í sumar enda byrjun liðsins í mótinu ein sú slakasta sem um getur. Fyrir nokkrum vikum síðan var leikmönnum liðsins smalað saman í ferð sem ætlað var að efla andann í hópnum. Gengi KR-inga í Landsbankadeildinni hefur verið á
Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,82 prósent í gær og stendur í 8.702 stigum sem er hæsta gildi hennar frá upphafi. Bréf í Exista hækkuðu mest, um 4,78 prósent. Icelandair hækkaði um 3,67 prósent og Kaupþing um 2,69 prósent. Alls hækkuðu bréf níu af fjórtán félögum í úrvalsvísitölunni, en einungis þrjú félög lækkuðu. Bréf í Össuri lækkuðu mest, um 2,27 prósent. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um tæp þrjátíu og sex prósent frá áramótum. Greiningardeild Glitnis hefur spáð fjörutíu og fimm prósenta hækkun á árinu, samanborið við 15,8 prósenta hækkun í fyrra. Jónas Friðþjófsson, sérfræðingur greiningar Glitnis, segir bjart yfir markaðnum. Spár bankanna hafi allar gert ráð fyrir hækkunum auk þess sem von sé á góðum uppgjörum frá þungavigtarfélögum. „Útlitið er mjög bjart og aðstæður góðar. Síðan bætist við að Actavis er á leiðinni út af markaði. Þar losnar um mikið af peningum og hluti þeirra fer væntanlega á innlendan hlutabréfamarkað.“ Jónas telur líklegt að afkomuspár bankanna hafi haft sitt að segja um hækkanir undanfarinna daga. „Ef maður mætir á svæðið og segir tólf prósenta hækkun fram undan næstu sex mánuði er eðlilegt að einhverjir fjárfestar hlaupi til. Í kjölfarið fylgir síðan hækkunarrykkur og það er einmitt það sem við erum að sjá.“ Greiningardeild Kaupþings hefur spáð því að úrvalsvísitalan endi í 9.000 til 9.500 stigum í árslok. Haraldur Yngvi Pétursson, sérfræðingur greiningardeildar, segir hækkanir undanfarinna daga hugsanlega skýrast af þremur meginþáttum. „Í fyrsta lagi finnst mér líklegt að við sjáum áhrif afskráningar Actavis. Auk þess eru menn líklega að nýta sér áframhald á hagstæðri fjármögnun í erlendum myntum eftir stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans. Loks hafa bankarnir birt hagstæðar afkomuspár undanfarna daga sem gætu leitt til hreyfinga á markaði.“ Haraldur Yngvi segist ekki endilega sjá neinar lækkanir í spilunum en útilokar þó ekki að smávægileg leiðrétting eigi sér stað. „Markaðurinn hefur náttúrlega hækkað mikið á skömmum tíma. Það er ekkert óalgengt að slíkum hækkunum fylgi einhverjar lækkanir.“
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira