Fyrstu lýðheilsufræðingarnir útskrifaðir 29. ágúst 2007 01:00 Lýðheilsufræðingar Jenný Ingudóttir, Ólöf Kristín Sívertsen og Birna Baldursdóttir eru meðal fimmtán nýútskrifaðra lýðheilsufræðinga frá Háskólanum í Reykjavík. Hrönn
Á laugardaginn voru lýðheilsufræðingar í fyrsta sinn útskrifaðir hér á landi. Sautján manna hópur hélt þá upp á lok tveggja ára meistaranáms við Háskólann Í Reykjavík. Námið er þverfaglegt eins og samsetning hópsins ber með sér. Innan hans er meðal annars að finna lækni, hjúkrunarfræðing, sjúkraþjálfa, líffræðing, kennara, félagsfræðing og viðskiptafræðing. Hlutverk lýðheilsufræðinga er á sama hátt víðtækt. Það er ekki síður göfugt: „Að hafa áhrif á samfélagið og breyta því til batnaðar þannig að allir hafi jafna möguleika á að lifa heilbrigðu lífi.“ Ætla að valda straumhvörfumLýðheilsufræði er ekki ný af nálinni. Hún hefur verið kennd í háskólum á Norðurlöndunum undanfarin tuttugu ár. Þá byggja Bandaríkin á langri sögu í rannsóknum á þessu sviði. Þótt hún hafi farið lágt á Íslandi er hér fyrir þó nokkuð stór hópur fólks sem hefur sótt lýðheilsumenntun til annarra landa.Hópurinn sem nú var að útskrifast frá HR er hins vegar fyrsti stóri hópurinn sem hlýtur menntunina hér á landi og útskrifast á sama tíma. Þær Birna Baldursdóttir, Jenný Ingudóttir og Ólöf Kristín Sívertsen eru þeirra á meðal. Þær segja hópinn ætla að valda straumhvörfum. Allar forsendur séu fyrir hendi nú til að mynda nauðsynlegan slagkraft til að koma hugmyndafræðinni á kortið. Að þeirra sögn er Ísland kjörstaður til að ná árangri. Smæð þjóðfélagsins geti hjálpað til þar sem raunverulega er hægt að ná til allra í ákveðnum hópi. Nokkuð sem ómögulegt gæti reynst annars staðar.Snertir á flestum sviðum samfélagsHugtakið lýðheilsa grundvallast á samfélagslegri og sameiginlegri ábyrgð á að bæta heilbrigði, lengja líf og auka lífsgæði fólks. Hugmyndin er því mjög víðtæk og teygir sig raunar inn á flestöll svið samfélagsins. Hlutverk lýðheilsufræðinga er að skilgreina vandamál og fara yfir hvað getur valdið þeim. Út frá því eru settar í gang aðgerðir, þeim fylgt eftir og skoðað hverju þær skila.Margir myndu tengja lýðheilsufræði beint við heilbrigðisgeirann. Þremenningarnir segja þau hins vegar alls ekki takmarkast við hann. Fræðin séu þverfagleg og snerti á félagslegum, efnahagslegum og umhverfislegum þáttum. Þær segja lýðheilsufræðing til að mynda eiga fullt erindi inn í fyrirtæki, ekki síður en til sveitarfélaga eða stofnana. Lýðheilsufræðingur gæti tekið á starfsmanna- og mannauðsmálum til dæmis. Hann myndi hafa það að aðalmarkmiði að efla heilsu og bæta líðan starfsmanna. Rannsóknir sýna að kostnaður við ráðningu nýs starfsmanns er gríðarlegur. Í skýrslu um mannauðsstjórnun á Íslandi, sem unnin var af sérfræðingum innan Háskólans í Reykjavík, kemur fram að starfsmannavelta hér á landi var þrettán prósent á ársgrundvelli árið 2005. Að bæta heilsu og líðan starfsmanna skilar bæði í meiri afköstum og minni starfsmannaveltu, sem vert er að sækjast eftir.Ýmislegt á prjónunumÞrátt fyrir að blekið sé rétt að þorna á prófskírteinum lýðheilsufræðinganna eru þegar ýmis plön komin á prjóna þeirra. Í vor var Félag íslenskra lýðheilsufræðinga stofnað. Er vonin að ná til allra lýðheilsufræðinga, bæði þeirra sem fyrir voru og hinna sem útskrifuðust nú. Þær Birna, Ólöf Kristín og Jenný eru sammála um mikilvægi þess að koma upp öflugu tengslaneti þeirra á milli, sama hvaðan menntunin er komin, enda er samvinna lykill að árangri. Þá má ráða af orðum þremenninganna að þess verði ekki langt að bíða uns einhver þeirra taki sig saman og stofni ráðgjafarfyrirtæki með sérstaka áherslu á lýðheilsutengd málefni.Hinn 21. september býður útskriftarhópurinn til hádegisverðarfundar þar sem hugtakið lýðheilsa og námið við Háskólann í Reykjavík verður kynnt ásamt lokaverkefnum nemenda. Boðið verður upp á léttar veitingar. Það er um að gera fyrir stjórnendur fyrirtækja og aðra áhugasama að skjótast upp í HR í hádeginu og kynnast þeim ávinningi sem lýðheilsufræðingar geta skapað fyrirtækjum og stofnunum.
Mest lesið Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Sjá meira