Tesco náði Dobbies 29. ágúst 2007 04:15 Breskir fjölmiðlar segja að þótt Tesco hafi tryggt sér meirihluta bréfa í garðvörukeðjunni Dobbies geti skoski auðkýfingurinn Tom Hunter velgt meirihlutaeigendum undir uggum.
Yfirtökubaráttu um skosku garðvörukeðjuna Dobbies Garden Centres er lokið en breski verslanarisinn Tesco hefur tryggt sér 23,5 prósent hlutabréfa í henni. Þetta kemur til viðbótar 29,6 prósenta hlut sem Tesco á fyrir. Breskir fjölmiðlar hafa eftir Terry Leahy, forstjóra Tesco, að hann væri himinlifandi og sæi loks fram á að ýta þeim áætlunum úr vör sem verslanakeðjan lagði upp með þegar tilboð í Dobbies upp á rúmar 155 milljónir punda, 20 milljarða króna, var gert í júní. Skoski auðkýfingurinn Tom Hunter, sem situr á tæpum þriðjungi bréfa í Dobbies, hefur verið andsnúinn áformum Tesco frá upphafi og áformaði að gera sjálfur gagntilboð. Hunter á sjálfur tvær garðvörukeðjur í félagi við Baug. Þótt Hunter hafi dregið sig úr baráttunni ætlar að hann að halda fast í hlutabréf sín og er talið að hann geti velgt Tesco undir uggum á hluthafafundum.
Mest lesið Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Himneskt ei meir Viðskipti innlent Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira