Hannes krafði Einar um formannsstólinn 31. mars 2007 08:15 Hannes Smárason. FL Group og tengdir aðilar hafa styrkt eign sína í Glitni. Hannes vildi að stjórnin endurspeglaði valdahlutföllin í hluthafahópnum en aðrir hluthafar telja valddreifingu mikilvæga fyrir bankann.
Deilur hafa verið uppi um stjórnarformennsku og valdahlutföll í bankaráði Glitnis. Fyrir aðalfund vildi FL Group auka hlut sinn í bankaráðinu og fá stjórnarformennsku. Samkomulag varð um að Einar Sveinsson gegndi starfinu áfram. Eftir kaup Baugs og Tom Hunter í Glitni voru FL Group og tengdir aðilar komnir með yfirhöndina í hluthafahópnum. Hannes Smárason, forstjóri FL Group, krafðist þess að Einar Sveinsson segði af sér stjórnarformennsku og FL Group fengi stólinn. Við þessu brugðust aðrir stjórnarmenn en fulltrúar FL Group ókvæða og varð niðurstaðan óbreytt ástand. Sjónarmið FL Group er að fyrir-tækið fái völd í bankaráðinu í samræmi við eign sína. Sjónarmið annarra stjórnarmanna er að stjórn bankans þurfi að endurspegla hluthafalýðræði og ekki sé gott fyrir bankann að ein fylking hluthafa fari með öll völd. Forstjóri bankans hefur verið talsmaður slíks fyrirkomulags og samkvæmt heimildum er ekki um að ræða neinn ágreining innan bankaráðsins um stefnu eða stjórnun bankans. Innan viðskiptalífsins má greina mismunandi sýn á átökin í bankanum. Sumir telja eðlilegt að valdahlutföll og eignarhlutur endurspeglist í bankaráðinu. Aðrir telja að einsleitt ákvörðunarvald í bankaráðinu kunni að rýra traust á bankanum og valda honum skaða. Því sé valddreifing í bankaráðinu heppileg. Í þeim hópi er framganga Hannesar talin lítt yfirveguð. Bjarni Ármannsson forstjóri Glitnis, hefur verið við stjórnvölinn í bankanum í tíu ár. Samkvæmt heimildum er enginn vilji í stjórninni til annars en að hann stjórni bankanum áfram. Bjarni mun hins vegar líta svo á sjálfur að það muni hann ekki gera undir hvaða kringumstæðum sem er. Bjarni styrkti sig verulega í sessi á síðasta ári þegar hart var sótt að íslenskum fjármálastofnunum. Hann hlaut fyrir það athygli utan landsteinanna. Eignarhlutur hans í bankanum nemur ríflega sex milljörðum króna og ekki talið að hann hafi áhyggjur af framhaldinu fyrir sig persónulega. FL Group er fjárfestingafélag sem hefur stöðu eigna sinna til stöðugrar endurskoðunar. Samkvæmt eðli félagsins velta menn stöðugt fyrir sér nýjum félögum og tækifærum. Meðal þeirra hugmynda sem upp hafa komið var sameining Glitnis og Kaupþings. Þær vangaveltur hafa ekki komist af hugmyndastigi, enda þótt óvarlegt sé að útiloka að það gerist einhvern tímann síðar. Hjá stærstu eigendum Kaupþings er ekki mikill áhugi á því í augnablikinu. Eins og staðan er telja menn engan djúpstæðan ágreining á ferðinni, enda ekki orðið vart mismunandi sýnar á framtíð bankans. Menn óttast þó að samstarfið hafi beðið einhverja hnekki sem tíminn leiði í ljós hvort jafni sig.
Mest lesið Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Sjá meira