Billjónsdagbók 18.11. Jón Arnar Marínósson skrifar 18. nóvember 2007 00:01 OMXI15 var 7.325,35, þegar ég fann hvernig stýrivaxtahækkunin helltist yfir mig, og Dow Jones var 13.042,74 þegar ég tók inn tvær klórdíasepoxíð, þrjár parkódín og fimm evrur sem komu svona af sjálfu sér eins og Valgerður. Pillurnar slógu á ein-kennin. Ég held að okkur Mallí sé alveg óhætt að slá meiri lán í útlöndum. Hins vegar er óhjákvæmilegt að skera niður við pólsku húshjálpina, hana Elzbietu. Seðlabanka-stjórinn verður að fá á tilfinninguna að þessi peningamálaskeifa hans sé að virka. Elzbieta sprakk á limminu þegar við bárum fletið hennar úr kyndiklefanum yfir í hjólageymsluna. Ég sagði að þetta væri þó miklu huggulegri staður en rusla-tunnuhólfið. Forsætsiráðherrann hefði beðið þjóðina að spara. Það væri ekki þjóð-hagslega hagkvæmt að líta á útlendinga eins og venjulegt fólk. Jafnvel Akureyringar hefðu tekið upp á því að líta sömu augum á Pólverja og þeir líta á alla aðra utanbæjar-menn. Ég varð að leggja hendur á Elzbietu til að koma henni í skilning um að hér væru lögmál markaðarins að verki. Mallí bað mig í guðs bænum að meiða ekki konuna. Það mætti ekki níðast á svona gámafólki eins og það væri neðri hluti Þjórsár. Enginn pólitíkus á Íslandi þorir núna að láta sjá sig með fjárfesti fyrr en í fyrsta lagi eftir áramót þegar fólk er búið að gleyma Villa Þonn og hvað það var sem hann gleymdi. Íslenskir stjórnmálamenn hafa ekki þessa sömu næmu tilfinningu fyrir íslenskri tungu og þeir Tóti og Palli hennar Tobbu í Efstaleitinu sem segja eins og rétt er að það er bigg diffrens í íslensku á því „að taka við peningum", „að sjá peninga", „að vita af peningum" eða „að finna lykt af peningum". Annars er eins og sé að renna af mönnum öll karlmennska. Nú eru netþjónabú það allra nýjasta. Netþjónabú?! Einu sinni áttu minkabú og refabú að bjarga öllu - og með hverju endaði það? Með því að bjarta framtíðin stóð upp og sagði „alltbú". Af hverju ekki að halda sig við stóriðju?! Það ætla þeir þó að gera í Grindavík, minnugir þess sem hún Halla í Þórkötlustaðahverfinu sagði þegar hún hrakti Keflavíkurdræsuna onaf flatsænginni hjá Gúnda: Orka í Grindavík er fyrir Grindvíkinga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga Skoðun