Ríkisreikningur: Hagvöxtur var 2,6% á síðasta ári Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. ágúst 2007 19:42 Mynd/ Rósa
Hagvöxtur á Íslandi mældist 2,6% á árinu 2006 en hann var rúmlega 7% tvö ár á undan. Samkvæmt niðurstöðutölum ríkisreiknings fyrir árið 2006 nam afgangur á rekstrarreikningi 82 milljörðum króna samanborið við 113 milljarða afgang árið áður. Þegar afkoman er skoðuð án tilfallandi liða eins og eignasölu, lífeyrisskuldbindinga og afskrifta skattkrafna er afgangur af venjubundinni starfsemi 91 milljarður króna en afgangur ársins á undan nam 63 milljörðum. Í fréttatilkynningu frá fjármálaráðuneytinu segir að handbært fé frá rekstri, það er að segja það fjármagn sem rekstur ríkissjóðs skilaði til að bæta eignastöðu sína, hafi numið 88 milljörðum króna á árinu samanborið við 35 milljörðum árið á undan. Ríkissjóður hafi nýtt þessa greiðsluafkomu til að lækka skuldir og bæta sjóðstöðu sína hjá Seðlabankanum í því skyni að vega á móti þenslu og eftirspurn í hagkerfinu. „Tekjur ársins 2006 urðu alls 422 milljarðar króna á árinu en það er um 37% af landsframleiðslu samanborið við rúm 41% árið á undan. Tekjur af sköttum á sölu vöru og þjónustu nema 186 milljörðum króna og eru þær 44% af heildartekjum. Það er hækkun um 21 milljarð frá fyrra ári og vegur þar þyngst að tekjur af virðisaukaskatti hækka um 18 milljarða. Gjöld ársins 2006 nema 340 milljörðum króna en það er 29,8% af landsframleiðslunni. Árið 2005 voru gjöldin 308 milljarðar eða 30,2% af landsframleiðslunni. Gjöldin hækka því um 32 milljarða króna eða 3,3% að raungildi miðað við breytingar neysluverðsvísitölunnar," segir í tilkynningunni.
Mest lesið „Áfengið þarf að vera erlendis þegar þú pantar það“ Viðskipti innlent Frakkar þurfi mögulega að leita aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Viðskipti erlent Stefna á gervigreindarver við Húsavík Viðskipti innlent Arnar og Eiríkur til Fossa Viðskipti innlent Þrettán nýir veitingastaðir opna í Smáralind Viðskipti innlent Að púsla saman vinnu, aukavinnu og lífinu Atvinnulíf Helga nýr fjármálastjóri Ísorku Viðskipti innlent Hætt hjá Íslenskri erfðagreiningu eftir sjö ára starf Viðskipti innlent Mun flytja í nýtt hús við Austurveg á Selfossi Viðskipti innlent Hermann tekur við söluarmi Samherja Viðskipti innlent Fleiri fréttir Helga nýr fjármálastjóri Ísorku Stefna á gervigreindarver við Húsavík Arnar og Eiríkur til Fossa „Áfengið þarf að vera erlendis þegar þú pantar það“ Hermann tekur við söluarmi Samherja Hætt hjá Íslenskri erfðagreiningu eftir sjö ára starf Þrettán nýir veitingastaðir opna í Smáralind Mun flytja í nýtt hús við Austurveg á Selfossi Hvernig skipuleggjum við útgjöld heimilisins? Rekstrarhagnaðurinn þremur milljónum krónum hærri Umframeftirspurn eftir skuldabréfum Play Gunnar Ágúst til Dineout Vilhjálmur í Smáríkinu ákærður fyrir að selja eina hvítvínsbelju Þrjú ráðin til Landsbyggðar Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Melabúðarbræður með hálfan milljarð í fyrra Framkvæmdastjóri Smáríkisins ákærður Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna á mánudaginn Samherjahjónin fyrrverandi langtekjuhæst Kannast ekki við „lífróður“ Heimildarinnar sem fækkar útgáfudögum Skattakóngurinn flytur úr landi Setja tvo milljarða til í fiskeldið sem tapar hundruðum milljóna „Framboð á markaði er ekki það sem neytendur vilja kaupa“ Móðurfélag útgefanda Moggans tapaði hundruðum milljóna Segir háa stýrivexti bitna á ákveðnum hópi og boðar aðhald í fjárlagafrumvarpi Keyra á orkudrykkjamarkaðinn Kaupa Gompute „Ég bið almenning að hafa þolinmæði með okkur“ Ósáttir með ákvörðun peningastefnunefndar Muni ekki hika við að hækka vexti Sjá meira