Geysir kaupir í kanadísku jarðhitafyrirtæki 30. júlí 2007 11:15 Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysir Green Energy. MYND/Vilhelm
Gengið hefur verið frá samningum um kaup Geysis Green Energy ehf. á um 20% hlutafjár í kanadíska jarðhitafyrirtækinu Western GeoPower Corporation (WGP). Með kaupunum er Geysir kominn inn á jarðvarmamarkaðinn í Norður Ameríku en WGP byggir nú 30 megawatta jarðvarmavirkjun á Geysissvæðinu í Kalíforníu og í undirbúningi er 100 megawatta virkjun í Bresku Kólumbíu í Kanada. Í tilkynningu frá Geysi Green Energy kemur fram að alls kaupi Geysir liðlega 40 milljón nýja hluti í félaginu og er hlutafjáraukningin liður í að „fjármagna jarðvarmavirkjun sem fyrirtækið vinnur nú að á Geysissvæðinu í norðanverðri Kaliforníu sem er stórt jarðhitasvæði í Sonomasýslu. Heildarkaupverð hlutarins í WGP er um 600 milljónir íslenskra króna og með kaupunum fær Geysir mann í stjórn fyrirtækisins," segir í tilkynningunni. Kenneth MacLeod forstjóri Western GeoPower segir að með hlutafjáraukningunni, sem núhafi verð gengið frá, sé að mestu lokið fjármögnun á borun og byggingu fyrirhugaðrar jarðhitavirkjunar á Geysissvæðinu. „Það er sérstakur ávinningur fyrir okkur að fá Geysi að félaginu og þekking þeirra og samstarf mun styrkja okkur í þeim verkefnum sem við vinnum að," segir Kenneth MacLeod.Ásgeir Margeirsson forstjóri Geysis segir að kaup Geysis á hlut í Western GeoPower falli mjög vel að áformum fyrirtækisins um að vera virkur þátttakandi í stærsta orkumarkaði heimsins sem sé í Bandaríkjunum. „Við hlökkum til að taka þátt í að efla og styrkja Western GeoPower til þátttöku og þróunar á frekari verkefnum vestanhafs í framtíðinni," segir Ásgeir Margeirsson.Western GeoPower er kanadískt jarðhitafyrirtæki með höfuðstöðvar í Vancouver. Félagið er skráð á TSX markaðinn í Toronto. Fyrirtækið einbeitir sér að vinnslu endurnýtanlegrar jarðvarmaorku til að mæta ört vaxandi þörf fyrir raforku á vesturströnd Bandaríkjanna og Kanada. Í dag vinnur fyrirtækið að tveimur megin verkefnum á þessu sviði. Annars vegar að áður nefndri virkjun á Geysissvæðinu í Kaliforníu, sem ráðgert er að hefji raforkuvinnslu snemma árs 2010 og verður um 30 megawött. Hins vegar jarðhitavirkjun í South Meager í bresku Columbíu í Kanada og gera áætlanir ráð fyrir að þar geti risið allt að 100 megawatta virkjun innan 10 ára.Geysir Green Energy er fjárfestingarfélag um sjálfbæra orkuvinnslu sem stofnað var af FL Group, Glitni og VGK-Hönnun í janúar 2007. Tilgangur þess er að fjárfesta í verkefnum tengdum sjálfbærri orkuframleiðslu víðs vegar um heim. Geysir Green Energy einbeitir sér að tækifærum í nýtingu jarðvarma, fjárfestingum í þróun og byggingu jarðvarmaorkuvera og annast yfirtöku á jarðvarmaorkuverum í eigu orkufyrirtækja. Félagið tekur þátt í einkavæðingu orkufyrirtækja þar sem tækifæri gefast og stefnir að því að verða leiðandi á sínu sviði í heiminum.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira