Mótmæla stórri mosku í Lundúnum Óli Tynes skrifar 20. júlí 2007 14:36 Moska í Pakistan.
Hátt á þriðja hundrað þúsund manns hafa skrifað undir mótmæli gegn stórri mosku sem múslimasöfnuður vill byggja í Lundúnum. Moskan yrði kostuð af opinberu fé og kosta milljarða króna. Mótmælendurnir vilja að því fé verði varið til heilbrigðismála. Moskan á að rúma 12 þúsund manns sem gerði hana að stærsta húsi allra trúarbragða í landinu. Það var kona að nafni Jill Barham sem hrinti undirskriftasöfnuninni af stað. Hún tengist hægri sinnaðri bloggsíðu sem kölluð er The English Rose, eða enska rósin. Ef dæma má eftir formálanum á undirskriftalistanum er það þó ekki eingöngu umhyggja fyrir heilbrigðiskerfinu sem veldur því að Jill Barham vill láta mosku peningana ganga þangað. Í formálanum segir: "Við hin kristnu í þessu mikla landi viljum að hætt verði við að byggja risamosku í austurhluta Lundúna. Það myndi aðeins valda skelfilegu ofbeldi og þjáningum, og það ætti að veita meira fé til heilbrigðismála." Margir þeirra sem skrifa undir láta fylgja með óprenthæfar skammir um múslima. Eins og; "Drepið alla niggara."
Erlent Mest lesið Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Innlent Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Fullyrti að samkomulag yrði undirritað og sundið opnað Erlent Límdu efnin á fætur sína Innlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Innlent Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Fleiri fréttir Fullyrti að samkomulag yrði undirritað og sundið opnað „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Facebook lá niðri Kaninn pakkar saman í Evrópu Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Sjá meira