Century Aluminum sækist eftir skráningu í Kauphöllina 29. maí 2007 11:02
Century Aluminum Company, móðurfélag Norðuráls, hefur óskað eftir því að verða skráð í Kauphöll Íslands. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá félaginu er það skráð á bandaríska Nasdaq-markaðinn og er það fyrsta skráða fyrirtækið í Bandaríkjunum, sem sækir um skráningu á Íslandi. Félagið verður því bæði skráð í Bandaríkjunum og á Íslandi. Stefnt er að því að auka hlutafé Century Aluminum um fjórðung og gæti söluandvirði hlutanna numið allt að 28 milljörðum króna miðað við núverandi markaðsverð fyrirtækisins. Íslenskum stofnana- og fagfjárfestum verður boðið að taka þátt í útboðinu sem fram fer á sama tíma í Bandaríkjunum og á Íslandi. Umsjón með útboðinu á Íslandi er í höndum Kaupþings banka og Landsbanka Íslands. Reiknað er með því að nota meginhluta af auknu hlutafé til að fjármagna fyrirhugaða byggingu álvers í Helguvík en reiknað er með að framkvæmdir geti hafist þar í byrjun næsta árs. Ragnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og fjármálasviðs Norðuráls, segir í tilkynningu að skráning Century Aluminum á Íslandi sé í samræmi við þá stefnu fyrirtækisins að treysta böndin við íslenskt samfélag. „Við höfum áður leitað til íslenskra banka með verkefni og svo vel tókst til að eftir því var tekið. Nú stefnum við að því að auka enn samstarfið með því að gera okkur sýnilegri á íslenska fjármálamarkaðinum," segir Ragnar. Útboðsferlið hefst formlega á morgun miðvikudaginn 30. maí með kynningum fyrir fagfjárfesta. Það stendur út næstu viku. Í framhaldi af því verður félagið skráð á First North Iceland og gefst þá almenningi kostur á að eiga viðskipti með hluti í fyrirtækinu.
Mest lesið Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Viðskipti innlent Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Viðskipti innlent Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Viðskipti innlent Yfir þúsund hafa fært flug vegna yfirvofandi verkfalls Viðskipti Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Atvinnulíf Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Viðskipti innlent Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Viðskipti innlent Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Viðskipti innlent Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Fleiri fréttir Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Sjá meira