Fjárfestingarsjóðir kæra stjórn Stork 10. janúar 2007 06:00
Bandarísku fjárfestingasjóðirnir Centaurus og Paulson hafa fyrir viðskiptaráði áfrýjunardómstóls Amsterdam í Hollandi farið fram á lögbann á aðgerðir sem stjórnfyrirtækjasamstæðunnar Stork hefur gripið til vegna hluthafafundar 18. þessa mánaðar. Þá hafa sjóðirnir farið fram á að rannsakaðir verði stjórnunarhættir innan samstæðunnar. Stjórn Stork samstæðunnar gaf 19. desember síðastliðinn út hlutabréf til Stichting Stork sem jafngilda 50 prósentum kosningabærra hluta í félaginu, að undanskildu einu atkvæði. Með því segja sjóðirnir að búið sé að taka frá hluthöfum í Stork allt ákvörðunarvald og fara fram á að tekin verði fyrir notkun hlutanna við atkvæðagreiðslu á hluthafafundinum síðar í mánuðinum. Sjóðirnir segjast harma að þurfa að leita til dómstóla í viðleitni til að vernda rétt hluthafa, en heimildin til sértækrar hlutabréfaútgáfu líkt og stjórn Stork greip til er einungis sögð hafa verið til að verjast fjandsamlegri yfirtöku. Hluthafar Stork og stjórn samstæðunnar hafa deilt síðan í haust þegar samþykkt var á hluthafafundi að selja frá samstæðunni hliðarstarfsemi, en stjórnin er á móti þeirri stefnu. Hér heima bíður Marel niðurstöðu í deilunni, en auk þess að vera í hópi hluthafa, hefur félagið hug á að kaupa matvælavinnsluvélahlutann Stork Food Systems.
Mest lesið John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Viðskipti innlent Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Viðskipti innlent Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Viðskipti erlent Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Viðskipti innlent Milla ætlar í formanninn Viðskipti innlent Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Viðskipti innlent Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Neytendur ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira