Erlent vinnuafl heldur ferðaþjónustunni gangandi 9. júní 2007 18:16
Nærri má geta að ferðaþjónustu á Íslandi sé haldið gangandi með erlendu starfsfólki. Í sumum tilvikum er hlutfall erlendra starfsmanna á hótelum hér á landi um 90 prósent. Von er á góðu ferðasumri. Mikil mannekla hefur verið í gisti- og ferðaþjónustu það sem af er sumri. Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri SAF (samtaka ferðaþjónustunnar), segir að fyrirtæki í greininni hafi átt í ströggli með að ráða fólk en fyrirtæki í þessum geira hafi mörg hver gripið til þess að ráða til sín erlent vinnuafl til að leysa úr vandanum. Að sögn Renato Grünenfelder, framkvæmdastjóra hjá Fosshótelum, hefur einna verst gengið að ráða menntað starfsfólk og hann segir að sárlega vanti Íslendinga í störf hjá fyrirtækinu. Hlutfall erlendra starfsmanna á hótelum fyrirtækisins er í sumum tilvikum um og yfir 90%. Af 12 starfsmönnum á hótel Vatnajökli eru t.d. einungis tveir Íslendingar. Þórður B. Sigurðsson aðstoðarframkvæmdastjóri Fosshótela, segir að þetta sé fráleitt óskastaða hjá fyrirtækinu. Þórður segir að tungumálaörðugleikar séu fátíðir vegna þessa en lakara sé að erlendir starfsmenn séu ekki alltaf vel að sér í menningu og sögu Íslendinga. Að sögn Ernu Hauksdóttur er gert ráð fyrir aukningu ferðamanna til landsins á þessu ári og bókanir í gistingu lofi góðu. Hún segir að aukið framboð í gistingu skili sér yfirleitt í bættri markaðssetningu á nýrri þjónustu. Því kalli nýir kostir í gistingu á aukna eftirspurn. Nýting á Fosshótelum er betri í sumar en í fyrra og segjast forkólfar Fosshótela prísa sig nokkuð sæla.
Mest lesið „Af hverju ertu svona í framan?“ Innlent Var að streyma á TikTok þegar hann féll til jarðar og lést Erlent Alelda bíll á Reykjanesbraut Innlent Safnaði í bálköst innandyra en kennir stundarbrjálæði um íkveikjuna Innlent Kurr innan Samfylkingarinnar vegna brottvísunar ungbarna Innlent Tætir í sig leikskólaplan borgarinnar: Segir Reykjavík taka skref aftur á bak Innlent Fjöldi án rafmagns vegna vonskuveðurs í Noregi Erlent „Algjörlega alveg út í hött“ Innlent Boða íbúafundi vegna mögulegrar sameiningar sveitarfélaganna Innlent Skipar Ísraelum að hætta að sprengja Erlent Fleiri fréttir Eldur í húsi á Granda Prestur og prófastur bíður spenntur eftir Hrútaskránni Kurr innan Samfylkingarinnar vegna brottvísunar ungbarna Fokdýrar flugferðir, ögurstund á Gasa og óvenjulegt innbrot Boða íbúafundi vegna mögulegrar sameiningar sveitarfélaganna Alelda bíll á Reykjanesbraut Framkvæmdirnar komi eftir ákall frá íbúum Safnaði í bálköst innandyra en kennir stundarbrjálæði um íkveikjuna Skrítin afstaða BSRB og ASÍ Tekist á um leikskólamál og árásir á Gasa Umfangsmikil flugslysaæfing á Reykjavíkurflugvelli Tætir í sig leikskólaplan borgarinnar: Segir Reykjavík taka skref aftur á bak Rannsaka mögulega stunguárás Göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaár opnast „Af hverju ertu svona í framan?“ „Algjörlega alveg út í hött“ Umferðin færist inn á íbúðagötur Andar sem eru ekki hér en voru í myndinni þeir sveima og fylgjast með Dugar ekki lengur að dorga og nú þurfi að kasta út neti Vann á öllum deildum leikskólans Segja Rússa heyja stríð við Vesturlönd og síðustu ævidagarnir á Grund „Kópavogsmódelið er ekkert annað en þjónustuskerðing“ Nýsestur á skrifstofunni þegar hann fékk bíl í flasið Starfsmaður á Brákarborg grunaður um kynferðisbrot Fresta framkvæmdum vegna veðurs Sýnist komið að seinni hluta í eldsumbrotum í Sundhnúksgígaröðinni Grunaður um að hafa brotið á fleiri en tíu börnum Varaformannsslagur í Miðflokknum: Öll vinir og „peppuð“ fyrir landsþingi Stöðfirðingum enn ráðlagt að sjóða vatn vegna mengunar Tillögurnar í leikskólamálum séu vonbrigði og uppgjöf Sjá meira