Krónan helst sterk þrátt fyrir veikingu Guðrún Helga Sigurðardóttir skrifar 6. júní 2007 05:15 „Við gætum séð sveiflur og meiri veikingu á næstu dögum en ég held samt að krónan haldist sterk áfram út sumarið,“ segir Ragnhildur Jónsdóttir, sérfræðingur hjá Glitni.
Krónan veiktist um tæp tvö prósent í fyrradag og hafði veikst um eitt prósent eftir hádegi í gær. Veiking krónunnar er rakin til þess að Hafrannsóknastofnun hefur lagt til að þorskafli næsta fiskveiðiárs verði takmarkaður við 130 þúsund tonn. Aflinn á þessu fiskveiðiári er 193 þúsund tonn. Gengi íslensku krónunnar veiktist töluvert í kjölfar fregnanna og fór úr 112 stigum í 114,6 stig í fyrradag. Hlutabréfamarkaðurinn lækkaði einnig lítillega, um 0,6 prósentustig. Gengislækkunin er talin hafa haft þar áhrif en þó hafa markaðir í Evrópu einni verið að lækka, eftir því sem fram kom í Hálffimmfréttum Kaupþings. Sjávarútvegsráðherra situr þessa dagana á rökstólum með aðilum fiskiðnaðarins og hagsmunahópa til að reyna að ná samkomulagi. Greiningardeild Kaupþings gerir ráð fyrir að farið verði bil beggja milli þess sem aflamarkið segir til um og þess sem Hafrannsóknastofnun leggur til og samdrátturinn verði um tuttugu prósent. Ef það gengur eftir fer aflamarkið úr 193 þúsund tonnum í 155 þúsund tonn. Ragnhildur Jónsdóttir, sérfræðingur hjá Greiningu Glitnis, segir að gengi krónunnar sé ennþá sterkt og ekki þurfi að leita lengra aftur en um miðjan maí, þá hafi vísitölugildið verið svipað og nú. Ragnhildur taldi að tölur um viðskiptajöfnuð, sem Seðlabankinn birti síðdegis í gær, gætu haft einhver áhrif til lækkunar gengisins. „Við gætum séð sveiflur og meiri veikingu á næstu dögum en ég held samt að krónan haldist sterk áfram út sumarið og fram á haustið. Við gætum séð snarpa lækkun í haust þegar Seðlabankinn fer að lækka stýrivextina og áhugi á vaxtamunarviðskiptum minnkar hjá erlendum aðilum. Veikingin í gær og fyrradag gæti líka verið vegna þess að erlendir fjárfestar hafi verið að innleysa hagnað,“ segir hún. Í Vegvísi Landsbankans kom fram að yrði farið að tillögum Hafrannsóknastofnunar gæti það haft veruleg áhrif á næsta ári þar sem mikill niðurskurður á aflaheimildum hefði umtalsverð áhrif á hagvöxtum auk þess sem það myndi setja mark sitt á afkomu sjávarútvegsfyrirtækjanna. Þó þætti ólíklegt að sjávarútvegsráðherra fylgdi ráðleggingum fiskifræðinganna til hins ítrasta.
Mest lesið Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Viðskipti innlent Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Viðskipti innlent Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Viðskipti innlent Yfir þúsund hafa fært flug vegna yfirvofandi verkfalls Viðskipti Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Atvinnulíf Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Viðskipti innlent Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Viðskipti innlent Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Fleiri fréttir Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Sjá meira