Viðskipti innlent

Taka við Epson-kvittanaprenturum

Handtölvur – Gagnatækni hafa samið við EPSON um dreifingu og sölu á Íslandi á EPSON kvittanaprenturum sem hafa verið vinsælustu strimla- og kvittanaprentarar á Íslandi í gegnum árin og eru notaðir við flest afgreiðslukerfi á markaðinum.

Dreifing var áður í höndum Tæknivals en hefur nú færst til Handtölva – Gagnatækni ehf. og verður hluti af lausnaframboði fyrirtækisins til verslana og veitingahúsa.

Handtölvur – Gagnatækni þjónustar stóran hluta af íslenskum verslanakeðjum og heildsölum og er með yfir eitt þúsund viðskiptavini á Íslandi, Evrópu, Asíu og Bandaríkjunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×