Harma mismunun þjónustugreina 23. mars 2007 06:15 Formenn stjórnmálaflokka sem sæti eiga á þingi sátu fyrir svörum á aðalfundi SVÞ í gær. MYND/GVA
SVÞ vilja að endurgreiðsla virðisaukaskatts til stofnana af aðkeyptri þjónustu nái víðar en til upplýsingatækni. Samtökin héldu aðalfund sinn í gær. Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) minna á að enn eru lögð 20 til 25 prósenta vörugjöld á raftæki, hreinlætistæki og byggingavörur og skora á ríkisstjórn og Alþingi að fella þessa löngu úreltu gjaldtöku niður. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar samtakanna sem fram fór í gær. Jafnframt vilja samtökin að endurskoðuð verði innheimta vörugjalda af sykri og sætindum því ljóst sé að vörugjöldin ráði ekki neyslu þessara vara. Eins vilja samtökin að uppboð og sala á tollkvótum verði aflögð og þeim úthlutað án verðhækkunaráhrifa, til dæmis með með hlutkesti. Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans og varaformaður stjórnar SVÞ, flutti erindi formanns og varaformanns á fundinum. Í ræðu hans kom fram að samtökin fagni nýrri útvistunarstefnu stjórnvalda en telji þó alls ekki nógu langt gengið. „Grundvallarforsenda fyrir því að útvistunarstefna stjórnvalda gangi upp er að ráðuneyti, stofnanir og fyrirtæki ríkisins fái endurgreiddan virðisaukaskatt af aðkeyptri þjónustu til að jafna út samkeppnisstöðu þjónustufyrirtækja og þjónustudeilda opinberra aðila," segir hann en samtökin telja óásættanlegt að einungis sé endurgreiddur virðisaukaskattur af kaupum ríkisfyrirtækja af þjónustu einnar atvinnugreinar sem er tölvu- og hugbúnaðargeirinn. „Erfitt er að átta sig á af hverju þjónustufyrirtækjum er mismunað á þennan hátt." Brynjólfur Bjarnason Samtökin segja jafnt þurfa yfir alla að ganga og breytingin sem fyrst að ná til allra þjónustufyrirtækja. Brynjólfur segir þá neikvæðu umræðu sem varð um verslunina í aðdraganda lækkunar virðisaukaskatts og vörugjalda af matvöru þann 1. mars hafa verið mikil vonbrigði. Sérstaklega að embættis- og stjórnmálamenn skyldu hafa „fallið í þá gryfju að sverta með ábyrgðalausu tali og sleggjudómum heila stétt manna" þegar þeir fullyrtu áður en 1. mars rann upp að lækkanir myndu ekki fara lengra en í vasa kaupmanna. Hann segir Hagstofuna hafa staðfest að matvöruverslunin hafi skilað lækkun að fullu til neytanda. Einnig gagnrýnir hann að færst hafi í vöxt hjá ráðuneytum og Alþingi að reglugerðir og lög séu samin án þess að hagsmunaaðilar fái að koma að málum á vinnslustigi. Yfirskrift aðalfundarins var „SVÞ og stjórnmálaflokkarnir - eigum við samleið?" og sátu formenn stjórnmálaflokkanna á þingi fyrir svörum í pallborði. Samfylkingin reyndist sá stjórnmálaflokkur sem er oftast er sammála áherslum SVÞ og sjaldnast ósammála, meðan Vinstri grænir eru sjaldnast sammála en oftast óssammála. Fyrir fundinn var formönnum stjórnmálaflokkanna sendar átta spurningar sem hagsmunamál sem SVÞ hafa beitt sér fyrir. Sjálfstæðisflokkurinn svaraði því einn afdráttarlaust játandi að hefja ætti sölu á léttu víni og öli í almennum verslunum á meðan Framsóknarflokkur, Vinstri grænir og Frjálslyndir leggjast gegn því. Samfylking gaf ekki afgerandi svar við spurningunni, en var eini flokkurinn sem var sammála því að næstu skref til lækkunar matvælaverðs á Íslandi ætti að vera niðurfelling innflutningsverndar á landbúnaðarvörur. Breyting varð á stjórn SVÞ. Sturla Gunnar Eðvarðsson, framkvæmdastjóri Samkaupa, var kjörinn nýr inn, en Ingvi I. Ingason, framkvæmdastjóri Rafha, lætur af stjórnarsetu.
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira