Andriy Shevchenko er leikmaður 19. umferðar Elvar Geir Magnússon skrifar 28. desember 2007 14:00 Andriy Shevchenko.
Úkraínski sóknarmaðurinn Andriy Shevchenko raðaði inn mörkunum fyrir AC Milan áður en hann var keyptur til Chelsea. Væntingarnar voru miklar en hann hefur heldur betur ollið vonbrigðum á Englandi. Nú gæti hinsvegar verið að birta til. Smelltu hér til að sjá myndband af leikmanni 19. umferðar - Andriy Shevchenko. Talað hefur verið um að það hafi aldrei verið vilji Jose Mourinho að kaupa Shevchenko heldur hafi það verið ákvörðun Roman Abramovich. Eftir að Avram Grant tók við Chelsea virðist Shevchenko endurheimt sjálfstraustið sem honum hefur vantað. Shevchenko skoraði tvö mörk fyrir Chelsea þegar liðið gerði ótrúlegt 4-4 jafntefli við Aston Villa á öðrum degi jóla. Annað þeirra kom úr vítaspyrnu en hitt var sérlega glæsilegt. Auk þess að skora þessi mörk þá lagði hann upp mark fyrir Alex í leiknum. Ferill Shevchenko hófst með unglingaliði Dynamo í Kænugarði en hann var ekki lengi að brjótast inn í aðalliðið. Ítalska stórliðið AC Milan kom auga á leikmanninn og keypti hann árið 1999. Þar lék hann til 2006 og skoraði 127 mörk í 208 leikjum. 11. maí 2006 var tilkynnt að hann væri á leið til Chelsea. Þar hefur hann átt erfitt uppdráttar og virðist fyrst núna vera að vakna almennilega til lífsins. Það efast enginn um hæfileika leikmannsins sem er fæddur markaskorari en hann hefur gert 36 mörk í 79 landsleikjum fyrir Úkraínu. Shevchenko er giftur bandarísku fyrirsætunni Kristen Pazik og er talið að hún hafi átt stóran þátt í því að hann ákvað að fara til Englands. Vilji Pazik var að börn þeirra myndu alast upp í landi þar sem enska væri töluð. Annar sonur þeirra heitir Jordan en hann var skírður eftir körfuboltahetjunni. Fullt nafn: Andriy Mykolayovych Shevchenko. Fæddur: 19. september 1976. Félög: Dynamo Kiev, AC Milan og Chelsea. Númer: 7
Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Man. United – Roma | Róm var ekki byggð á einni nóttu Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjá meira