Bankamönnum fjölgar um fimmtung á árinu 9. ágúst 2007 02:15 Flestir starfa hjá Kaupþingi en mesta fjölgun starfsmanna á árinu er í herbúðum Glitnis og Straums. MYND/GVA
Stöðugildum hjá viðskiptabönkunum þremur og Straumi-Burðarási hefur fjölgað ört frá áramótum eða um fimmtung. Um 7.740 manns störfuðu hjá bönkunum fjórum um mitt þetta ár en fjöldinn nam 6.445 í ársbyrjun. Er fjöldi bankamanna hjá þessum fjórum félögum því orðinn álíka og íbúafjöldi Mosfellsbæjar. Mest fjölgaði starfsmönnum í herbúðum Glitnis þar sem 500 meðalstöðugildi bættust við á fyrstu sex mánuðum ársins. Sú fjölgun skýrist einkum af yfirtöku á finnska fyrirtækinu FIM. Starfsmönnum Straums fjölgaði hins vegar hlutfallslega langmest og voru fjórfalt fleiri um mitt ár en í byrjun þess síðasta. Flestir starfsmenn starfa hjá Kaupþingi, um þrjú þúsund manns, en Landsbankinn kemur næstur í röðinni. Umtalsverð fjölgun starfsmanna er meðal þeirra skýringa sem bankarnir hafa gefið fyrir auknum gjöldum. Jafnframt hafa vaxandi umsvif bankanna erlendis aukið á kostnað. Aukning launakostnaðar og tengdra gjalda skýrist einnig af bónus til starfsfólks vegna rekstrarárangurs. Launa- og annar rekstrarkostnaður Glitnis, Kaupþings og Landsbankans hefur vaxið mikið á milli ára, um 45 prósent. Alls námu laun og annar rekstrarkostnaður um 83,6 milljörðum króna á fyrri hluta ársins samanborið við 57,4 milljarða á sama tímabili 2006. Aukningin er einnig talsverð á milli fyrsta og annars ársfjórðungs á þessu ári eða tæp sextán prósent. Kostnaðarhlutfall bankanna, það er hlutfall rekstrarkostnaðar af hreinum rekstrartekjum, fer almennt vaxandi þótt það sé lágt í sögulegum samanburði þar sem tekjur hafa líka aukist hratt. Launakostnaður hjá Glitni var 7,1 milljarður á öðrum ársfjórðungi og jókst um 48 prósent frá fyrsta ársfjórðungi. Þarna munu starfslok við Bjarna Ármannsson, fyrrverandi forstjóra, vega þungt. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins féllu 700 milljónir króna til vegna þeirra á fjórðungnum.
Mest lesið Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Atvinnuleysi jókst í júlí Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hótelin fá ný nöfn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Sjá meira