Sá óþekkti græddi 444 milljónir á Straumi í gær 18. ágúst 2007 00:29 Stjórnendur Straums/Burðaráss færðu óþekktum einstaklingi eða einstaklingum 444 milljónir að gjöf í gær með því að selja honum bréf í bankanum á gjafverði. MYND/ANTON BRINK
Straumur/Burðarás fjárfestingabanki seldi í gærmorgun stóran hluta sinna eigin bréfa í bankanum fyrir 10,23 milljarða. Ekki hefur fengist uppgefið hver kaupandinn er en sá óþekkti einstaklingur eða einstaklingar hljóta að brosa hringinn. Þegar markaðurinn lokaði í gærdag hafði hann eða þeir grætt 444 milljónir vegna mikilla hækkana bréfanna. Straumur/Burðarás seldi tæplega 75% af sínum eigin bréfum eða 5,31% af heildarbréfum bankans á genginu 18,6 sem er 0,2 hærra en lægsta gengi bréfanna undanfarin mánuð og sama gengi og var á bréfunum 29. janúar á þessu ári. Þegar markaðurinn lokaði í gær hafði gengi bréfanna hækkað um 4,2% eða upp í 19,40. Þá var 5,31% hluti óþekkta mannsins eða mannanna kominn upp í 10,67 milljarða. Fjármálafólk velti vöngum yfir því í gær af hverju forráðamenn Straums/Burðaráss kusu að selja svo stóran hluta bréfa bankans í sjálfum sér á jafn lágu gengi og raun ber vitni á meðan mikill órói er á markaði. Hlutahafar í Straumi/Burðarás, sem Vísir ræddi við í gær, voru allt annað en sáttir við þennan gjörning forsvarsmanna bankans og telja hann hafa rýrt verðmæti hans verulega.Stærsti hluthafi Straums/Burðaráss er Samson Global Holdings sem er í eigu feðganna Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar sem er jafnframt stjórnarformaður.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira