Skoðun

Við komum hingað fyrst!

Árið 1978 samþykkti norska Stórþingið með miklum meirihluta að virkja ána Alta. Ljóst var að virkjunin myndi skaða umhverfið, hreindýrarækt og laxveiði auk þess sem stærstu gljúfrum Norður-Evrópu yrði sökkt. Allt að 20.000 manns skráðu sig í Þjóðarhreyfinguna gegn virkjuninni og slagorð mótmælanna var „Vi kom først!“. Árið 1982 var ljóst að stjórnvöld höfðu sigrað í stríðinu um ána og mótmælendur gáfu eftir en virkjunin var gangsett í maí 1987.

Tveim árum síðar viðurkenndi þáverandi forsætisráðherra og fyrrum umhverfisráðherra, Gro Harlem Brundtland, að virkjunin hefði verið óþörf og þvinguð fram gegn betri vitund. Nú er ljóst að hún olli óþörfum og óafturkræfum umhverfisspjöllum sem eyðilögðu ómetanlegar auðlindir og að ekki yrði farið í sambærilega byggingu í dag. Á sama tíma byggja Íslendingar Kárahnjúkavirkjun, okkar Alta. Umhverfisverndarsinnar töpuðu baráttunni um Kárahnjúka en önnur barátta er tekin við. Þetta er ekki einungis barátta um umhverfi og framtíð Þjórsár heldur snýr hún að rétti fólks til að hafa áhrif á umhverfi sitt og ákvarðanir stjórnvalda. Lýðræðinu í landinu er ógnað.

Aukið vald til innlendra og alþjóðlegra stórfyrirtækja eykur árásir á auðlindir okkar. Togstreitan er á milli ráðandi skammtíma fjárhagslegra viðhorfa og langtíma umhverfis- og samfélagslegra viðhorfa. Milli gróðahyggju og sjálfbærrar þróunar.

Náttúruperlur okkar eru verðmætar í sjálfu sér og við höfum hag af því að vernda þær. Ef stefna stjórnvalda og fjárhagslegra hagsmunaaðila nær fram að ganga munu erlend og innlend fyrirtæki, sem hafa það eina markmið að græða sem mest á auðlindum kjördæmisins, bora í sundur Reykjanesskaga, Hellisheiði, virkja Þjórsá og henda upp a.m.k. einni álbræðslu í Þorlákshöfn. Ásókn þeirra sem sjá sér fjárhagslegan ávinning í nýtingu auðlinda okkar hefur aukist og það sér ekki fyrir endann á þeim ósköpum. Við getum ekki leyft þessa aðför.

Ég hvet alla íbúa Suðurkjördæmis til að standa vörð um verðmæti svæðisins. Þetta varðar okkur öll frá Reykjanesi að Vatnajökli. Verndum ímynd Suðurlands, eflum blómlega byggð á grundvelli sjálfbærrar þróunar og heyjum sterka baráttu fyrir kjördæminu okkar. Látum engan hirða af okkur lifibrauðið, við komum hingað fyrst!

Höfundur er varaþingkona VG í Suðurkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Blaður 35

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Sjá meira


×