Innlent

Fæst málin koma til kasta lögreglunnar

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar

Fæst af þeim bóta- og tryggingarsvikamálum upp kemst um, koma til kasta lögreglunnar. Áætla má að hundruð milljóna króna séu svikin út úr Tryggingastofnun á ári hverju.

Tryggingastofnun hefur fengið um 170 ábendingar frá almenningi um bótasvik síðan eftirlit var tekið upp hjá stofnuninni. Ríflega helmingur þeirra hefur reynst á rökum reistur.

Málin snúast að mestu um einstaklinga sem skrá sig ekki í sambúð eða gefa laun sín ekki upp þegar þeir sækja um bætur, vinna svokallað svarta vinnu, og svíkja þannig út bætur.

Þeir sem fremja slík brot eiga von á að greiðslur til þeirra stöðvist. Þeir þurfa jafnvel að greiða peningana til baka og þá með dráttarvöxtum. Slík mál koma í fæstum tilvikum inn á borð hjá lögreglunni.

Nokkur tryggingarsvikamál koma upp á ári hverju sem tengjast starfsmönnum á heilbrigðissviði. Þá er um að ræða mál þar sem sérfræðingar eða aðrir innan heilbrigðisgeirans senda inn falsaða reikninga eða ef veitt er þjónusta sem ekki er í samræmi við samninga. Slík mál eru litin alvarlegri augum en bótasvik einstaklinga og eru oftar kærð til lögreglu.

Tryggingastofnun telur að rannsókn yrði mun auðveldari ef heimildir væru rýmri til að afla upplýsinga. Verið er að taka þessi mál út fyrir Tryggingastofnun og skoða hvaða heimildir myndu gagnast best, einnig hvort rétt sé að herða viðurlög. Búist við að niðurstöður úr þeirri vinnu liggi fyrir með haustinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×