Ráðinn tæknilegó hönnuður sextán ára 4. júní 2007 14:00 Jóhann Breiðfjörð með tæknilegó vélmenni sem hann sýnir krökkunum sem koma á tæknilegó námskeiðin. MYND/vilhelm
Jóhann Breiðfjörð starfaði sem hönnuður hjá LEGÓ í mörg ár. Nú kennir hann íslenskum krökkum að byggja tæknilegó. „Ég var mikið legónörd sem krakki og var alltaf að byggja eitthvað. Þegar ég var sextán ára fór ég til Danmerkur með vélmenni sem ég hafði byggt úr tæknilegói. Ég bankaði upp á hjá forstjóra LEGÓ og var síðan ráðinn eftir nokkur prufuverkefni," segir Jóhann Guðmundur Breiðfjörð, sjálfmenntaður tæknilegóhönnuður. Jóhann var fyrstur erlendra hönnuða sem var ráðinn hjá fyrirtækinu og starfaði þar næstu fimm árin. Fyrst á sumrin með framhaldsskóla og síðan í fullu starfi eftir stúdentspróf. „Ég fékk um 200 kíló af tæknilegói sent til Íslands. Síðan setti ég saman módelin hérna og sendi til Danmerkur ásamt hugmyndum," segir Jóhann sem á hlutdeild í mörgum tæknilegó leikföngunum sem LEGÓ hefur framleitt. „Ég var aðallega í hugmyndaþróun en ef þeim leist vel á módelin voru þau þróuð áfram og sum fóru í framleiðslu. Flest leikföngin eru þó samstarfsverkefni margra hönnuða," segir Jóhann. Allar hugmyndir sem hann hefur unnið fyrir LEGÓ eru trúnaðarmál. Módelin sem hann byggir í dag eru hins vegar ekki leyndarmál. „Ég á nokkur gæluverkefni sem ég gríp í. Til dæmis þegar sjónvarpsdagskráin er leiðinleg," segir Jóhann. Í dag kennir Jóhann íslenskum krökkum að byggja tæknilegó meðal annars á vegum Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar og hjá Símenntun Mímis. „Ég kenni krökkunum að nota rafmagnsmótora og tannhjól og gíra upp og niður. Þau hafa frjálsar hendur við verkefnaval þar sem þau standa misjafnlega að vígi. Síðan hjálpa ég þeim að útfæra það sem þau langar til að gera," segir Jóhann. Næsta tæknilegónámskeið er á vegum Símenntunar Mímis fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára og hefst í júní. Nánari upplýsingar: www.mimir.is
Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Sjá meira