Stærsta yfirtaka Íslandssögunnar 15. ágúst 2007 12:25
Þessa stundina er verið að handsala stærstu yfirtöku Íslandssögunnar þegar Kaupþing kaupir hollenska bankann NIBS fyrir þrjá milljarða evra eða 270 milljarða króna. Að sögn talsmanna Kaupþings er hér um að ræða stærstu viðskipti Íslandssögunnar sem eiga sér stað í einum viðskiptagjörningi. Starfsemi NIBC þykir falla einkar vel að starfsemi Kaupþings, hvort heldur sem litið er til landfræðilegrar dreifingar, vöruframboðs eða fyrirtækjamenningar. NIBC er fyrirtækjabanki, sem var stofnaður 1945. Hjá bankanum starfa 718 manns og er hann með starfstöðvar í Haag, Lundúnum, Brussel, Frankfurt, New York og Singapúr. Seljandi er fjárfestahópur undir forystu J.C. Flowers & Co. LLC. Kaupþing greiðir seljanda hluta af kaupverðinu með útgáfu nýrra hlutabréfa að verðmæti 1360 milljónir evra. Í framhaldinu verður seljandinn næststærsti hluthafinn í Kaupþingi.Samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi eiga kaupin muni dreifa áhættu í rekstri Kaupþings og jafnframt tryggja stöðu bankans sem leiðandi fyrirtækja- og fjárfestingarbanka í þjónustu við lítil og meðalstór fyrirtæki í Evrópu. Í framhaldinu mun Kaupþing starfa í 15 þjóðlöndum.Hagnaður Kaupþings hefur aukist um 77 prósent og eignir um 75 prósent á ári undanfarin fjögur ár. Þessi aukning hefur náðst með örum innri vexti og með yfirtökum. Talsmenn Kaupþings fullyrða að eftir þessa yfirtöku verði Kaupþing í hópi fremstu fyrirtækja og fjárfestingarbanka í Evrópu. Kaupþingsmenn búast við að yfirtakan gangi greiðlega. Sameinaður banki muni hafa greiðari aðgang að fjármögnun og stærri og sterkari eiginfjárstöðu.Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, segir að yfirtakan sé eðlilegt framhald á yfirlýstri stefnu bankans um frekari vöxt og dreifðari rekstur. NIBC sé góður banki sem Kaupþing hafi fylgst með í mörg ár.Kaupþing skipar einnig annað sætið á listanum yfir stærstu viðskipti Íslandsögunnar í einum gjörningi er bankinn keypti danska fjármálafyrirtækið FIH um mitt ár 2004 á einn milljarð evra, eða 90 milljarða íslenskra króna.Kaup Novators á öllum hlutum í Actavis fyrr í sumar komast einnig í hóp stærstu viðskipta Íslandsögunnar. Þar skiptu 182 milljarðar króna um eigendur. Þar var þó ekki um einn eiginlegan gjörning að ræða.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira