Höfum ekki sagt okkar síðasta 15. ágúst 2007 04:30 Hörður Arnarson, forstjóri Marels, kynnti afkomu fyrirtækisins á öðrum ársfjórðungi á morgunfundi á mánudag. „
Órói á mörkuðum getur falið í sér margvísleg tækifæri fyrir fyrirtæki á borð við Marel,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri fyrirtækisins, en hann fór yfir afkomu þess og horfur á fundi með greinendum á mánudagsmorgun. Hörður segir Marel skoða á hverjum tíma tvö til fjögur fyrirtæki með yfirtöku í huga, en þar ber hæst áhuga félagsins á Stork Food Systems. Hörður segir Marel fjárhagslega sterkt fyrirtæki en undanfarið hafi umsvif private equity fjárfestingasjóða keyrt upp verð á fyrirtækjum. „Sá órói sem við höfum séð á fjármálamörkuðum og orðrómur um takmarkað aðgengi að lánsfé getur því falið í sér tækifæri fyrir vel fjármögnuð fyrirtæki á borð við Marel því að samkeppnin um kaupin verður minni og verð lægri.“ Varðandi hlutinn í Stork segir Hörður ljóst að LME eignarhaldsfélag taki ekki yfirtökutilboði Candovers í félagið og telur ólíklegt að það verði samþykkt, enda sé það undir gengi bréfa Stork á markaði. Hann segir Marel hafa átt í óformlegum viðræðum um kaup á Food Systems, en þær ekki skilað árangri. Þótt Hörður vilji fara varlega í yfirlýsingum má ljóst vera af orðum hans að slagurinn um Stork heldur áfram. „Við erum klárlega ekki búnir að segja okkar síðasta í þessu máli,“ segir hann, en kveðst þó ekki tilbúinn að greiða hvað sem er fyrir Stork. „En við höfum verið að kaupa undanfarna mánuði og ekki komið nein yfirlýsing um að við séum hættir því.“
Mest lesið Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Viðskipti innlent Atvinnuleysi jókst í júlí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Sjá meira