Viðskipti innlent

Keops tvöfaldar stærð Stoða

Skarphéðinn Bergsteinarsson
Skarphéðinn Bergsteinarsson

Fasteignafélagið Stoðir hefur lagt fram yfirtökutilboð í danska fasteignafélagið Keops og bjóða hluthöfum annaðhvort reiðufé eða hlutabréf í Stoðum í skiptum. „Það sem menn fá með að gera þetta er félag sem er tvöfalt það sem Stoðir eru í dag,“ segir Skarphéðinn Berg Steinarsson, forstjóri Stoða. „Ef þetta gengur eftir verða Stoðir í hópi stærstu fasteignafélaga Norðurlanda og það er svigrúm til frekari fjárfestinga.“



Miðað við tilboðsgengið 24 danskar krónur á hlut nemur virði Keops um 49 milljarða króna. Stoðir eru metnar á 37 milljarða í þessum viðskiptum. Tilboðið er háð því að Stoðir eignist níutíu prósent í Keops.



Fyrir skemmstu urðu miklar skipulagsbreytingar á Stoðum sem fólu í sér að félagið hefur tekið stefnuna á hlutabréfamarkað á næstu tólf mánuðum og jafnframt var ákveðið að auka eigið fé þess um fjörutíu milljarða króna. „Hugmyndin var að bæta við eigið fé og stækka félagið. Þá kom þessi hugmynd til skoðunar,“ segir Skarphéðinn Berg.



Tveir stærstu hluthafar Keops, Fons, sem fer með 31,8 prósenta hlut, og Baugur Group, sem á um 20,3 prósent, hafa tekið tilboði Stoða gegn greiðslu hlutafjár. Baugur er aukinheldur stærsti hluthafinn í Stoðum með 38 prósent.



Gangi tilboðið eftir er það ætlun Stoða að taka Keops af markaði. Þá er ákvæði um það að Keops sé heimilt að greiða út eins háan arð til Stoða og dönsk lög leyfa.



Í tilboðinu eru einnig ákvæði um að Keops hafi heimild til að selja dótturfélagið Keops Development A/S til fjárfestingararms í eigu Fons og Baugs. Skarphéðinn segir að félagið sé í fasteignaþróun sem tengist ekki kjarnastarfsemi Keops, það er fasteignaútleigu til langs tíma. Kaupverðið miðast við 225 milljónir danskra króna, jafnvirði um 2,5 milljarða króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×