Stuðningur Íslands er mikils metinn 25. mars 2007 05:00 Nú erum við aldeilis í klandri, hugsaði ég þar sem bátskænan skoppaði á öldutoppunum og regnið buldi á bátsverjum. Við vorum stödd á Viktoríuvatni, ferðafélagar frá Íslandi og Úganda, eftir viðburðaríka heimsókn til Kalangala-eyja. Á heimleiðinni hrepptum við mikið þrumuveður sem gerði þessa ánægjulegu heimsókn að hinni mestu svaðilför. Ekki var laust við að sjóveiki gerði vart við sig og varð mér að orði að starf utanríkisráðherra væri svo sannarlega meira en fundasetur og formlegar athafnir. Að lokinni fyrstu heimsókn minni til Afríku er margt sem brennur á ferðalanginum. Í aðra röndina er sárt að sjá þá neyð sem víða ríkir í fátækustu löndum heims, en í hina röndina fyllist maður lotningu og virðingu fyrir heimafólki, sem með sterkum vilja og ótrúlegri lífsgleði reynir að bæta líf sitt og barna sinna. Það eftirminnilegasta við heimsóknina voru konurnar sem ég hitti. Hvort sem þær voru ráðherrar, þingmenn eða konur að berjast fyrir bættu lífi fyrir sig og sína, fann ég að framtíð Afríku býr í krafti kvennanna. Mér þótti líka gaman að eftir því var tekið að sendinefndin frá Íslandi var aðeins skipuð konum og þetta varð oft tilefni fjörugra umræðna um stöðu kvenna almennt. Stefnu ríkisstjórnarinnar um aukningu framlaga til þróunarmála hefur verið fylgt eftir af festu. Þróunarsamvinna er í dag ein meginstoð utanríkisstefnu Íslands. Á síðasta ári námu framlög til málaflokksins 0,27% af vergum þjóðartekjum, samanborið við 0,18% árið áður. Þetta er mikil hækkun, sem þýðir að Ísland nálgast það meðaltal sem önnur iðnríki leggja til þróunarmála. En betur má ef duga skal. Takmarkið er að ná 0,35% markinu árið 2009 og að mínu mati á ekki að staldra við þar, heldur stefna áfram og uppfylla markmið Sameinuðu þjóðanna um að 0,7% þjóðartekna renni til þróunarsamvinnu. Því markmiði tel ég raunhæft að ná árið 2015. Nýverið lagði ég fram á Alþingi skýrslu um skipulag þróunarsamvinnu Íslands. Núverandi fyrirkomulag hefur þjónað okkur ágætlega í aldarfjórðung, en nýjar leiðir og breyttar áherslur í alþjóðlegu þróunarstarfi kalla á að við skoðum með gagnrýnum hætti hvernig þessum málum verði best háttað til framtíðar. Utanríkisráðuneytið fer með stefnumótun í þróunarsamvinnu og Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) með yfirstjórn tvíhliða verkefna í samstarfslöndum Íslands. Báðir aðilar starfa með frjálsum félagasamtökum og með viðskiptalífinu og utanríkisráðuneytið fer með framkvæmd friðargæsluverkefna. ÞSSÍ er heimilt að starfa með alþjóðastofnunum, en utanríkisráðuneytið hefur fyrirsvar í málefnum þeirra. Endurskoðunin leiddi því í ljós að núverandi fyrirkomulag er flókið og felur í sér verulega skörun innan stjórnsýslunnar. Þegar horft er til framtíðar þarf að forðast enn frekari skörun og tvíverknað. Á ferð minni til Úganda sá ég hversu mikilvægt starf ÞSSÍ vinnur þar í landi. Sú þekking á þróunarsamvinnu og málefnum þróunarlanda sem hefur byggst upp innan stofnunarinnar er mjög dýrmæt og hana þarf að varðveita. Það gerum við hins vegar ekki með óbreyttu fyrirkomulagi, þar sem starfsemi ÞSSÍ er aðskilin störfum utanríkisráðuneytisins. Sú leið sem ég tel skynsamlegasta fæli í sér samruna ÞSSÍ og utanríkisráðuneytisins. Ennfremur yrði sett á fót þróunarsamvinnuráð, sem í sætu fulltrúar Alþingis, félagasamtaka, viðskiptalífs og fræðistofnana. Þróunarsamvinnuráðið yrði ráðgjafarvettvangur fagaðila um stefnu og áherslur í þróunarmálum, en svipað fyrirkomulag er algengt í nágrannalöndunum. Með þessu fyrirkomulagi fengist heildarsýn á þróunarsamvinnu Íslands. Veruleg samlegðaráhrif myndu nást, m.a. hvað varðar mannauðsstjórn og fjársýslu. Auðveldara yrði að framfylgja áherslum Íslands vegna alþjóðlegra skuldbindinga og sú þekking og mannauður sem hefur skapast á þróunarmálum myndi samnýtast til heildstæðrar umfjöllunar um málaflokkinn. Jafnframt myndi breytt fyrirkomulag einfalda samstarf stjórnvalda við frjáls félagasamtök sem verða sífellt virkari þátttakendur á sviði þróunarsamvinnu og neyðar- og mannúðaraðstoðar. Síðast, en ekki síst, er ég þeirrar skoðunar að mörg tækifæri felist í samstarfi við viðskiptalífið. Þörf þróunarlandanna fyrir fjárfestingu og tækniþekkingu er mikil og við eigum að virkja útrásarvilja og nýsköpun íslensks viðskiptalífs þróunarlöndunum til hagsbóta. Á sama tíma vil ég efla atbeina Alþingis enn frekar og umfjöllun þess um þróunarmál. Til dæmis hefur borið á því að þróunarmál falli í skuggann af umdeildari utanríkismálum þegar reglubundnar skýrslur utanríkisráðherra eru ræddar á Alþingi. Þessu þarf að breyta, t.d. með auknu samráði við utanríkismálanefnd og að þróunarsamvinnan verði rædd sérstaklega í þingsölum a.m.k. einu sinni á ári. Nú er skammt til þingkosninga. Það kemur því í hlut nýrrar ríkisstjórnar og þings að taka endanlega afstöðu til þeirrar niðurstöðu sem skýrslan geymir. Skýrslan er innlegg í umræðu sem mikilvægt er að fari fram og leiði til farsællar niðurstöðu sem sátt geti ríkt um. Málefnið er svo sannarlega mikilvægt og fagleg sjónarmið eiga að ráða ferðinni. Skýrsluna má nálgast á vefsetri utanríkisráðuneytisins, þar sem einnig er hægt að koma á framfæri ábendingum og skoðunum um málefnið. Höfundur er utanríkisráðherra. Það eftirminnilegasta við heimsóknina var konurnar sem ég hitti. Hvort sem þær voru ráðherrar, þingmenn eða konur að berjast fyrir bættu lífi fyrir sig og sína, fann ég að framtíð Afríku býr í krafti kvennanna. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason skrifar Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar Hr. X bjargaði jólunum Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Öll lífsins gæði mynda skattstofn Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Þegar lögheimilið verður að útilokunartæki Jack Hrafnkell Daníelsson skrifar Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar Skoðun Mýtuvaxtarækt loftslagsafneitunar Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað ætlið þið að gera fyrir okkur Seyðfirðinga? Júlíana Björk Garðarsdóttir skrifar Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir skrifar Skoðun Jólagjöfin í ár Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller Skoðun
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar
Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller Skoðun