Glitnir les í orð forsætisráðherra 18. júní 2007 11:09
Greiningardeild Glitnis spáir því að millileiðin verði farin þegar kemur að því að taka ákvörðun um kvótaúthlutun fyrir næsta fiskveiðiár. Þeir spá þessu eftir að hafa hlustað á þjóðhátíðardagsræðu Geirs H. Haarde í gær. Sú leið gæti minnkað útflutningstekjur um 10 milljarða króna. Í Morgunkorni Glitnis er meðal annars haft eftir Geir að ríkisstjórnin standi einhuga að baki sjávarútvegsráðherra í því að ákvörðun um kvóta næsta árs verði tekin að „vandlega athuguðu máli, að fyrir liggi allar hliðar málsins áður en ákvörðun er tekin, ekki einvörðungu hin fiskifræðilega, að leitað verði samstöðu sem flestra um niðurstöðu og jafnframt litið sérstaklega til þeirra byggðarlaga sem verst standa. Hverjum manni er það ljóst að þjóðin er nú betur í stakk búin til að takast á við áföll á þessu sviði en oftast áður. Nú er meiri viðspyrna og við höfum betri efni á að líta til lengri tíma og taka á okkur byrðar sem létt gætu róðurinn síðar. Það eru hyggindi sem í hag koma". Glitnismönnum þykja þessi orð forsætisráðherra renna stoðum undir þá skoðun þeirra „að í ljósi reynslu fyrri ára sé líklegt að sjávarútvegsráðherra fari ekki eftir ráðleggingum Hafró að fullu en minnki engu að síður þorskkvóta núverandi fiskveiðiárs um nálægt 30 þús. tonn. Við eigum því von á eins konar millileið hjá sjávarútvegsráðherra. Sú leið gæti minnkað útflutningstekjur um nálægt 10 milljarða kr," segir að lokum í Morgunkorni Glitnis.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira