Einkaneysla eykst áfram 14. ágúst 2007 08:36 MYND/Heiða
Sú mikla veltuaukning sem varð í dagvöruverslun í mars síðastliðnum, þegar virðisaukaskattur var lækkaður og vörugjöld afnumin, hefur haldið áfram að aukast hvern mánuð og einkaneysla heldur áfram. Samkvæmt nýjum tölum frá Rannsóknarsetri verslunarinnar jókst veltan um rúm fjögur prósent milli júní og júlí en ef júlímánuður er borinn saman við sama mánuð í fyrra jókst veltan í dagvöruverslunum, sem selja mat og drykk, um rúm tíu prósent. Á sama tímabili lækkaði verð á dagvöru um þrjú prósent. Fram kemur í tölum Rannsóknarsetursins að sala áfengis hafi tekið mikinn kipp í sumar og var hún nærri sjö prósentum meiri í júlí í ár en í sama mánuði í fyrr miðað við fast verðlag. Aukin sala á mat og drykk í sumar er meðal annars rakin til veðurblíðunnar en einnig er bent á í tilkynningu Rannsóknarsetursins að ferðamönnum hafi fjölgað um 19 prósent það sem af er ári og það hafi einnig áhrif á sölu matar og drykkja. „Í júlímánuði er áætlað að um 78.500 erlendir ferðamenn hafi komið til landsins og ætla má að þeir hafi samtals varið næstum tveimur milljörðum kr. til kaupa á mat og drykk í verslunum og á veitingahúsum þann mánuð. Auk þess má ætla að þessir ferðamenn hafi varið um 824 millj. kr. til kaupa á öðrum vörum í íslenskum verslunum, ef miðað er við skoðanakönnun Ferðamálastofu á hlutfallslegri dreifingu útgjalda erlendra ferðamanna á Íslandi," segir í tilkynningu Rannsóknarseturs verslunarinnar. Enn fremur er bent á að greiðslukortavelta sýni að einkaneysla landsmanna haldi áfram að aukast, en innlend greiðslukortavelta jókst um nærri tíu prósent á tímabilinu janúar til júní síðastliðinn, samanborið við sama tímabil í fyrra.
Mest lesið Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Viðskipti innlent Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Atvinnulíf „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Viðskipti innlent Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Nýr forstjóri Deloitte fundinn Viðskipti innlent Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Viðskipti innlent Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Viðskipti innlent Fleiri fréttir Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Sjá meira