Horfur í efnahagsmálum góðar 24. janúar 2007 18:45 Angela Merkel, kanslari Þýskalands, flutti ávarp á þinginu í dag. MYND/AP
Hagfræðingar eru bjartsýnir á að efnahagur heimsins verði með miklum ágætum á árinu 2007. Auk efnahagsmála eru umhverfismál í brennidepli á ársþingi Alþjóða efnahagsstofnunarinnar sem hófst í Davos í Sviss í morgun. Alþjóða efnahagsráðið hefur engin formleg völd en áhrif stofnunarinnar eru hins vegar ómæld. Ársþing þess sem jafnan er haldið í Davos í Sviss sækja frammámenn á sviði stjórnmála, viðskipta og fjölmiðlunar alls staðar úr heiminum og á seinni árum hafa stjörnur á borð við Bono og Peter Gabriel einnig látið til sín taka. Búist er við að umhverfismál verði þar efst á baugi næstu fimm daga en einnig ætla fundarmenn að skeggræða mögulegar lausnir á ófriðnum í Mið-Austurlöndum, svo og orkugjafa sem leyst geta olíuna af hólmi. Í dag lýstu hagfræðingar á þinginu því yfir að horfur í efnahagsmálum væru almennt góðar í heiminum, uppgangur í Evrópu og Asíu vegur upp á móti væntanlegri niðursveiflu í Bandaríkjunum. Veikir fasteignamarkaðir í Bandaríkjunum, hækkandi olíuverð og háir vextir valda þeim aftur á móti áhyggjum. Á sama tíma en talsvert sunnar á hnettinum, í Kenía nánar tiltekið, fer fram ársþing Alþjóða félagsmálaráðsins en þingið er haldið af andstæðingum hnattvæðingar. Þeir segja að Davos-ráðstefnan sé háð á forsendum Vesturlanda og miði að því að veikja þróunarlöndin enn frekar.
Erlent Fréttir Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Fleiri fréttir NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Sjá meira