Google ýtir undir bókalestur á netinu 24. janúar 2007 03:15
Bandaríska netleitarfyrirtækið Google er sagt vera að leggja lokahönd á nýja þjónustu sem gerir netverjum kleift að hala niður heilum bókum af netinu og lesa ýmist í tölvum eða á öflugri gerðum farsíma á borð við BlackBerry. Von forsvarsmanna Google er sú að netverjar geti nýtt þjónustuna til að leita ritverka á bókasöfnum með rafræna skráningu bóka á söfnum um allan heim. Google ætlaði að ýta þjónustu sem þessari úr vör fyrir um tveimur árum en varð að draga í land í kjölfar harðrar gagnrýni frá hendi bókavarða, rithöfunda og fleiri, sem töldu fyrirtækið brjóta á höfundarrétti. Að sögn Google er horft til þess að netverjar geti leitað ritverka á netinu og lesið sýnishorn úr þeim áður en heilu bókunum er halað niður. Jens Redmer, framkvæmdastjóri bókaleitarþjónustu Google í Evrópu, bendir á að ýmiss konar þjónusta verði í boði og muni netverjar geta valið um að leigja bækur til skamms tíma eða kaupa heilu ritverkin sem þeir geti lesið á tölvuskjánum. Vefritið Cnet bendir hins vegar á að enn sé langt í land að Google geti ýtt verkefninu úr vör. Rafrænar bækur á netinu hafi langt í frá slegið í gegn og muni það velta á lesendunum sjálfum hvort Google hafi hitt á gullæð á netinu.
Mest lesið Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Viðskipti erlent Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Viðskipti innlent Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Viðskipti innlent Forstjóraskipti hjá Ice-Group Viðskipti innlent Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Viðskipti innlent Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Viðskipti erlent Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Viðskipti innlent Vara við eggjum í kleinuhringjum Neytendur „Verið að auglýsa öryggi sem er falsöryggi“ Neytendur Fleiri fréttir Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Gengi Novo Nordisk steypist niður Samkomulagið það besta mögulega í erfiðum aðstæðum Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Sjá meira