Árdegi kaupir hlut Baugs Group í Merlin 28. júní 2007 09:47
Árdegi hf hefur keypt hlut Baugs Group í dönsku raftækjakeðjunni Merlin. Eftir söluna verður Merlin dótturfélag Árdegis sem mun eiga 65% af fyrirtækinu og Milestone mun eiga 35%. Það verða engar meiriháttar breytingar á núverandi þriggja ára viðsnúningsáætlun Merlin. "Við byrjuðum með ítarlega þriggja ára áætlun til að snúa við rekstri fyrirtækisins. Við munum halda áfram samkvæmt áætlun og hlökkum til tímanna framundan, - hvernig er annað hægt þegar maður hefur svona frábæran hóp af starfsfólki sem að er ákveðið í að takast á við verkefnin framundan", segir Sverrir Berg Steinarsson eigandi Árdegis. Fjárfestahópur, undir forystu Árdegis hf, keypti raftækjakeðjuna Merlin af FDB í september 2005 . Hópurinn samanstóð af Árdegi, Fjárfestingafélaginu Milestone og Baugi Group. Eftir kaupin var farið af stað með aðgerðaráætlun til að snúa við rekstri Merlin sem hafði um nokkurra ára skeið skilað umtalsverðu tapi. Nú þegar tvö ár eru liðin af þeim tíma sem ætlaður var til viðsnúnings, hefur Baugur ákveðið að selja hlut sinn í Merlin til Árdegis hf. Árdegi rekur einnig verslanir BT á Íslandi og er í áþekkum rekstri og Merlin. Sverrir Berg telur að nú sé góður tími til að taka sterkari stöðu í Merlin og ná fram frekari samlegð milli fyrirtækjanna tveggja. "Þetta hefur verið spennandi tímbil frá því við tókum yfir Merlin árið 2005. Við erum í aðalatriðum mjög sátt við árangurinn og horfum bjartsýn til framtíðar. Við sjáum mikla samlegðarmöguleika milli Merlin og reksturs okkar hér á Íslandi sem við munum nú kanna frekar." Gunnar S. Sigurðsson, forstjóri Baugs Group sagði "Við höfum verið ánægðir með fjárfestingu okkar í Merlin og þróun fyrirtækisins á undanförnum tveimur árum. Árdegi sýndi áhuga á að taka sterkari stöðu í fyrirtækinu og ná fram frekari samlegðaráhrifum með fyrirtækjum sínum á Íslandi og gerði okkur tilboð í okkar hlut sem við vorum ánægð með og við ákváðum að taka.."
Mest lesið Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Viðskipti innlent Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Viðskipti innlent Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Viðskipti innlent Yfir þúsund hafa fært flug vegna yfirvofandi verkfalls Viðskipti Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Atvinnulíf Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Viðskipti innlent Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Viðskipti innlent Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Sjá meira